Kaupa frekar föt í útlöndum Höskuldur Kári Schram skrifar 16. nóvember 2016 18:15
Margt bendir til þess að fatakaup Íslendinga í útlöndum hafi aukist á undanförnum mánuðum þrátt fyrir niðurfellingu tolla á fatnaði og skóm. Formaður Samtaka verslunar og þjónustu segir þetta áhyggjuefni en hagfræðingur Alþýðusambandsins segir að kaupmenn séu ekki að skila styrkingu krónunnar til neytenda. Fataverslun hér á landi dróst saman um rúm sjö prósent í síðasta mánuði miðað við sama mánuð í fyrra samkvæmt samantekt Rannsóknaseturs verslunarinnar. Tollar á fatnaði og skóm voru afnumdir í byrjun þessa árs og þá hefur krónan styrkst verulega á þessu tímabili. Verð á fatnaði hefur lækkað um tæp 6 prósent vegna þessa en Henný Hinz hjá hagfræðideild ASÍ segir að breytingarnar kalli á mun meiri lækkun. „Miðað við okkar útreikninga og þær upplýsingar sem við gátum best fengið þá átti vörugjaldalækkunin ein og sér að skila sér í svona 7 til 8 prósenta verðlækkun og svo skyldi maður ætla að gengisstyrkingin kæmi þar til viðbótar. Miðað við þetta þá hefur þetta ekki skilað sér sem skyldi,“ segir Henný Hinz. Andrés Magnússon framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir að miklar launahækkanir á síðustu misserum skýri þetta að sumi leyti. „Launavísitalan hefur hækkað um 10 til 11 prósent það sem af er ári og eins og allir vita er launakostnaður mjög afgerandi þáttur í öllum rekstri. Ekki síst í rekstri verslana,“ segir Andrés. Í samantekt Rannsóknaseturs verslunarinnar er bent á að markmiðið með tollabreytingum á fatnaði hafi verið að styrkja innlenda fataverslun. Mikil aukning á greiðslukortaveltu Íslendinga erlendis bendi hins vegar til þess að landsmenn kjósi í vaxandi mæli að kaupa frekar föt í útlöndum. „Þetta er áhyggjuefni þegar við skoðum þessar tölur. Eiginlega allar tölur eru mjög jákvæðar fyrir verslunina nema hvað fatnaðinn varðar. Það er virkilegt áhyggjuefni,“ segir Andrés
Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Innlent Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Sjá meira