Geðsjúk sáu aldrei krónu frá Birni Steinbekk Jakob Bjarnar skrifar 6. júlí 2016 10:28 Í október í fyrra ákvað Björn að gangast fyrir söfnun vegna átaksins #égerekkitabú og stofnun samtakanna Geðsjúk. En, minna varð um efndir en upp var lagt með.
Silja Björk Björnsdóttir, einn forsprakki samtakanna Geðsjúk, heldur því fram að Björn Steinbekk hafi gengist fyrir söfnun fyrir Geðsjúk í tengslum við afmæli sitt. Hins vegar sáu þær sem að samtökunum standa aldrei krónu frá Birni – efndir voru engar. Ekki á að Birni Steinbekk að ganga, eftir að Vísir greindi frá því að fjölmargir hafi verið sviknir um miða á landsleik Íslands og Frakklands í París á dögunum, er sem allar flóðgáttir hafi brostið. Ásakanir á hendur honum hrannast upp.Söfnun vegna afmælis sínsSilja Björk birti í gær á Facebookvegg sínum dramatíska frásögn af samskiptum sínum og félaga sinna í Geðsjúk við Björn við stofnun samtakanna í október á síðasta ári.Silja Björk: „Þið megið giska hvort við höfum nokkurn tíma séð krónu af þessu gríðarháa styrktarfé sem þessi göfugi maður lofaði málstaðnum okkar.“„Þessi maður. Sama dag og við stofnuðum GEÐSJÚK og efndum til byltingarinnar í kringum #égerekkitabú fór Björn af stað með þvílíkar yfirlýsingar. Honum fannst þetta svo flott málefni, gríðarlega mikilvægt og sparaði sko okkur ekki stóru orðin og kveðjurnar. Hann átti víst afmæli um svipað leyti og lofaði því á Facebook-síðu sinni að allir þeir sem myndu senda honum afmæliskveðju á Facebook myndu þar af leiðandi styrkja samtökin Geðsjúk (sem þá voru ekki samtök) um 1000 kr. Hann afþakkaði allar afmælisgjafir og bað fólk bara um að leggja í púkk í söfnunarsjóð fyrir okkur stelpurnar í GEÐSJÚK,“ skrifar Silja og rekur þessa sögu.Djúpt snortnar vegna söfnunarinnarEkki tókst að ná tali af Birni, hvorki nú né undanfarna daga, til að fá hans útskýringar á þessu. En, á Facebookvegg hans má sjá færslu frá 13. október í fyrra þar sem hann segir: „Var að skreppa á Netbankann minn og krossbrá. Þið eruð ótrúleg. Takk fyrir að styrkja Geðsjúk með mér. Frábært að sjá þessi framlög. Sýnist þetta vera komið hátt í 70.000 kr. samtals.“Mynd af Facebookvegg Björns Steinbekk, þar sem segir af gangi mála í söfnuninni. Tara Ösp er snortin: „Langar að hitta þig og faðma þig yndislegi maður.“Ein þeirra sem stendur að Geðsjúk, Tara Ösp Tjörvadóttir, en hún hlaut síðar sérstök verðlaun fyrir framtakið, er að vonum ánægð með þetta og sendir Birni kveðju: „Vá, við erum djúpt snortnar! Geðsjúk mun koma þessari fjárhæð að góðum notum. Langar að hitta þig og faðma þig yndislegi maður. Takk, takk, takk þú allir sem lögðu honum lið!“Styrktarféð skilaði sér aldreiEn, ef marka má frásögn Silju lýkur þessari frásögn ekki þarna. Hún heldur áfram að rekja gang mála. „Á þessum tíma voru samtökin ekki til, ekki með reikning og ekki með neitt annað en hugsjón, Facebook-grúppu og vitundarvakningu undir myllumerki. Hann setti þennan status án þess að tala við mig, Töru eða Bryndísi. Það fór svo að Tara var í einhverjum samskiptum við Björn og hann talaði um háa fjárhæð sem færi bara beint til okkar, bara þvílíkt flott! Þið megið giska hvort við höfum nokkurn tíma séð krónu af þessu gríðarháa styrktarfé sem þessi göfugi maður lofaði málstaðnum okkar.“Vísir hefur ítrekað reynt að ná tali af Birni Steinbekk en allt kemur fyrir ekki. Þá náðist ekki í Silju Björk í morgun til að fá nánari útlistun á gangi mála, en frásögn hennar talar sínu máli.Uppfært 14:40 Til áréttingar. Eins og skýrt kemur fram byggir þessi frétt á upplifun Silju Bjarkar og ber því ekki að skilja frásögnina sem yfirlýsingu af hálfu samtakanna Geðsjúk, ef einhver skyldi hrapa að þeirri ályktun. Vísir ræddi við Silju Björk sem vildi gjarnan að þetta atriði væri undirstrikað. Hún segist jafnframt alfarið standa við frásögn sína, aldrei hafi komið neitt framlag frá Birni. Þá hefur Tara Ösp Tjörvadóttir sett fram athugasemd sem snýr að því að Geðsjúk-samtökin hafi ekki verið formlega stofnuð og ekki kominn reikningur til að leggja inn á. „Geðsjúk er ekki enn stofnuð sem samtök, ekki með reikning eða félagareglugerðir og vegna þessa hef ég ekki ýtt frekar á eftir styrknum hans,“ segir Tara Ösp og er rétt og skylt að halda þessu atriði til haga, þó efnislega breyti það frásögninni ekki.
Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Innlent Fleiri fréttir Rannsóknin á lokametrunum Fjórir landsréttardómarar vilja taka skrefið í Hæstarétt Forsetar Íslands og Slóveníu ræða leiðtogahlutverk í breyttum heimi Segir forsætisráðuneytið misnotað í þágu sveitarstjórnarkosninga Sjálfsmark með „sjúklega samfylkingarlegu“ kjötvörubanni Framkoman laði ekki lækna að Landspítalanum Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum „Já, ég er dálítið reiður“ Matarstefnan bara „orð út í loftið“ Töldu framboðinu ekki til framdráttar að mæta í þáttinn Verð á stökum miða í sund hækkar en árskortið lækkar Árni vill stöðuna þrátt fyrir auglýsingu Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Bein útsending: Inga ávarpar kennara sem ráða ráðum sínum Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Sjálfkjörið á Vopnafirði Logi tekur undir mótmæli gegn þátttöku Rússa á Feneyjatvíæringnum Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Sjá meira