Wenger situr á gulli Tómas Þór Þórðarson skrifar 1. mars 2016 09:00 Arsene Wenger og Arsenal-menn eiga nóg af seðlum. vísir/getty
Fjármál enska úrvalsdeildarfélagsins Arsenal eru vægast sagt í góðum málum samkvæmt síðustu fjármálaskýrslu sem félagið gaf út á dögunum, en þar er gert upp sex mánaða tímabil frá júní til nóvember á síðasta ári. Svissneska fótboltavefsíðan Swiss Ramble, sem sérhæfir sig í skrifum um fjármál í fótboltaheiminum, er með mikla og ríkulega úttekt á þessari skýrslu Skyttanna. Samkvæmt nýjustu tölum er lausafjárstaða Arsenal gríðarlega sterk. Félagið á 159 milljónir punda eða 29 milljarða króna og er búist við að sú tala hækki á næstu mánuðum upp í 225-250 milljónir punda eða 40-45 milljarða króna. Þetta þýðir, samkvæmt úttekt Swiss Ramble, að Arsenal hefur meira fé á milli handanna en Manchester United (156 milljónir punda), Real Madrid (84 milljónir punda), Bayern München (78 milljónir punda) og Barcelona (58 milljónir punda). Ekki getur allur þessi peningur getur farið í leikmannakaup, samvæmt úttektinni, en stór hluti engu að síðurArsenal átti svo sannarlega efni á Alexis Sánchez.vísir/gettyLitlu eytt núna Fjárhagsstaða Arsenal hefur verið svo góð að undanfarin misseri að í lok tímabilsins 2013/2014 átti Arsenal 40 prósent af öllu eigin fé í ensku úrvalsdeildinni. Það útskýrir að einhverju leyti hvers vegna Wenger skellti sér á leikmannamarkaðinn og keypti Alexis Sánchez fyrir 35 milljónir punda eða sex milljarða íslenskra króna, ári eftir að borga 7,7 milljarða fyrir Mesut Özil. Arsenal hafði einfaldlega efni á því og rúmlega það. Arsenal er ekki bara að moka inn milljónunum því á þessu sex mánaða tímabili voru vitaskuld einhver útgjöld. Skytturnar létu af hendi 69 milljónir punda, þar af fóru tíu milljónir í uppbyggingu og fimm milljónir fóru í skattagreiðslur, svo dæmi séu tekin. Þrátt fyrir þessa gríðarlega sterku fjárhagsstöðu var Arsene Wenger verið tiltölulega rólegur á félagaskiptamarkaðnum fyrir yfirstandandi leiktíð og aftur í janúarglugganum. Arsenal eyddi tíu milljónum punda í Petr Cech síðasta sumar og keypti svo egypska miðjumanninn Mohamed Elneny frá Basel í janúar fyrir tæpar átta milljónir punda.
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Enski boltinn Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði Fótbolti Conor McGregor segist vera sá besti í sögunni og ætlar að sanna það Sport Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Fótbolti FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Fótbolti Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Handbolti Fleiri fréttir Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Manchester City þarf að slá met til að klófesta Anderson Real Madrid græddi milljarða á kaupum Liverpool Sjá meira