Advocaat: Hópurinn hjá Sunderland er ekki nógu góður Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. október 2015 22:00 Advocaat skilur Sunderland eftir í næstneðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar. vísir/getty
Dick Advocaat segir að slakur leikmannahópur Sunderland sé ein ástæða þess að hann sagði starfi sínu sem knattspyrnustjóri liðsins lausu um helgina. Í samtali í hollenskum sjónvarpsþætti sagði Advocaat að hann hefði ákveðið að hætta sem stjóri Sunderland í síðustu viku, fyrir leikinn gegn West Ham sem var hans síðasti við stjórnvölinn hjá félaginu. Leiknum lyktaði með 2-2 jafntefli en Sunderland leiddi 2-0 eftir 22 mínútur. „Ég var búinn að taka þessa ákvörðun í síðustu viku en stjórn félagsins bað mig um klára leikinn gegn West Ham og mig langaði að enda þetta með stæl,“ sagði Advocaat sem tók við Sunderland í mars á þessu ári. Hollendingnum tókst að bjarga Sunderland frá falli úr ensku úrvalsdeildinni og ákvað svo að gera eins árs við félagið, en upphaflega hafði hann ætlað sér að setjast í helgan stein eftir tímabilið 2014-15. „Það er ekki minn tebolli að standa í fallbaráttu. Mér fannst þetta vera rétti tíminn til að hleypa öðrum að. Ég sé samt ekki eftir því að hafa gert nýjan samning því þetta var frábær reynsla,“ sagði Advocaat en hann skilur við Sunderland í 19. og næstneðsta sæti úrvalsdeildarinnar með aðeins þrjú stig eftir átta leiki. „Leikmannahópur liðsins var einfaldlega ekki nógu sterkur. Við vissum að það þyrfti að styrkja liðið en stjórnarformaðurinn sagði mér aldrei hversu miklum peningum við gátum eytt í leikmenn,“ sagði Advocaat sem hefur komið víða við á löngum þjálfaraferli. Meðal þeirra sem hafa verið orðaðir við stjórastarfið hjá Sunderland eru Sam Allardyce, Sean Dyche og Nigel Pearson.
Enski boltinn Mest lesið Sjáðu mörkin þegar Real tryggði sér Evrópubikarinn Fótbolti „Við erum allavega ekki að fara að sofa“ Fótbolti Markavélin spennt fyrir skiptum til Arsenal Enski boltinn Slakur árangur og samskiptaleysi ástæðan fyrir brottvikningu Brynjars Björns Fótbolti Tekur við Napoli og verður sá launahæsti í sögunni Fótbolti Real Madrid Evrópumeistari í fimmtánda sinn Fótbolti „Erum á ákveðinni vegferð” Fótbolti „Besta kvöld lífs míns“ Fótbolti „Menn þurfa að gera sér grein fyrir að við erum í botnbaráttu, engu öðru“ Fótbolti Ronaldinho mætti með stæl á úrslitaleikinn Fótbolti Fleiri fréttir Markavélin spennt fyrir skiptum til Arsenal Ekkert verður af kaupunum á Everton Bellamy tekur tímabundið við en Lampard er líklega langtímalausnin Red Bull ryður sér til rúms í enska boltanum Breyta deildabikarnum til að létta á leikjaálagi bestu liðanna Samkeppnin eykst hjá Hákoni um markmannstöðu Brentford Einn af hverjum fimm atvinnumönnum notar nikótínpúða Ten Hag gæti þurft að bíða lengi eftir ákvörðun um framtíð sína Klopp til í skrúðgöngu missi Man. City tvo titla til Liverpool UEFA gæti fært United í Sambandsdeildina Njósnarar Liverpool áttu að fylgjast með Koopmeiners en hrifust að öðrum Edu getur ekki sagt það sem hann langar að segja um City Ten Hag skýtur á Slot: „Fólk hefur látið of mikið með Feyenoord“ Rashford kveður samfélagsmiðla í bili og sendir smá pillu Kraftaverkamaðurinn Emery framlengir á Villa Park Chelsea í viðræður um kaup á stjóra Leicester Tekur ekki við Chelsea sem vill ráða nýjan stjóra í vikunni „Fullt af mistökum“ Southampton vann á Wembey og spilar í úrvalsdeildinni á næsta tímabili Stuttorður Guardiola: „Óskaði þeim til hamingju með frábært tímabil“ Rooney tekur við B-deildarliði Plymouth Fyrstu táningarnir síðan Ronaldo árið 2004 Ten Hag: Ósanngjörn gagnrýni á bæði mig og liðið allt Bikarmeistarinn Bruno: „Þurftum að fórna og þjást en við gerðum magnaða hluti“ Manchester United tryggði sér titil í lokaleik tímabilsins Vill losna frá Crystal Palace og kaupa Everton Stýrir leik á Stamford Bridge eftir að Chelsea rak hann Ten Hag telur öruggt að hann verði áfram á næsta tímabili Segja að Ten Hag verði rekinn sama hvernig úrslitaleikurinn fer Fernandes eyðir óvissunni: „Ég vil ekki fara“ Sjá meira