Íslenskar dægurflugur og eitt krefjandi verk Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 4. nóvember 2015 10:15 „Það gefur augaleið að ég er í skemmtilegu starfi,“ segir Össur Geirsson, stjórnandi Skólahljómsveitar Kópavogs. Vísir/GVA
Lög eins og Draumur um Nínu, Bláu augun þín, Tvær stjörnur og Dimmar rósir eru á dagskrá Skólahljómsveitar Kópavogs á tónleikum í Háskólabíói í kvöld. „Við erum alltaf með stóra tónleika haust og vor og oft með létt þema á hausttónleikunum. Núna höfum við íslenska tónlist sem leiðarljós og spilum mörg dægurlög,“ segir Össur Geirsson, stjórnandi sveitarinnar. Eitt verkið er þó af öðrum toga. Það er Suite Arktica II sem Páll Pampichler Pálsson samdi fyrir íslenskar skólalúðrasveitir árið 2001 og var frumflutt á hljómsveitamóti í Reykjanesbæ það ár. Viku seinna var Skólahljómsveit Kópavogs á ferðalagi í Graz í Austurríki, heimabæ Páls og bauð honum á tónleika, það var í fyrsta skipti sem hann heyrði verkið flutt og var voða kátur, að sögn Össurar. „Við tökum það upp núna því krakkarnir þurfa líka svolítið krefjandi verk að vinna með, þó að við höfum léttmeti í fyrirrúmi. Þannig fá líka flestir áheyrendur eitthvað við sitt hæfi.“ Skólahljómsveit Kópavogs er tónlistarskóli og þeir 150 nemendur sem spila í kvöld eru ekki allir á sviðinu í einu, heldur er skipt í þrjár hljómsveitir eftir aldri og getu. „Börnin þurfa að ná ákveðnum prófum til að sanna getu sína og komast upp í næsta hóp. Sveitin er grunnskólastofnun þannig að krakkarnir hætta í kennslustundum hjá okkur eftir 10. bekk en mörgum finnst svo gaman að þeir halda áfram að spila með hljómsveitinni þó þeir fari í aðra tónlistarskóla,“ útskýrir Össur. Í nær 50 ára sögu Skólahljómsveitar Kópavogs eru aðeins tveir stjórnendur svo þeir eru augljóslega ekki síður ánægðir en krakkarnir. Össur kveðst hafa byrjað árið 1993. „Þú hefur kannski fylgst með því að launin eru ekkert til að hrópa húrra fyrir.“ segir hann. „Það gefur því augaleið að ég er í skemmtilegu starfi, annars væri ég farinn.“Tónleikarnir í kvöld hefjast klukkan 19.30. Aðgangseyrir er 1.300 fyrir 16 ára og eldri en ókeypis fyrir börn 15 ára og yngri.
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Sjá meira