Bayern valtaði yfir Porto | Sjáðu mörkin 21. apríl 2015 16:31
Bayern München þurfti aðeins einn hálfleik til þess að snúa 1-3 stöðu við gegn Porto. Liðið skoraði fimm mörk á 26 mínútum og gerði út um einvígið. Lokatölur 6-1 og Bayern komið í undanúrslit í Meistaradeildinni með því að vinna rimmuna 7-4 samanlagt. Bæjarar byrjuðu leikinn með miklum látum og hófu stórsókn að marki Porto strax á fyrstu mínútu. Sú pressa bar árangur eftir 14 mínútna leik þegar Thiago Alcantara stangaði boltann í netið. Á 22. mínútu kom annað markið. Jerome Boateng með skallamark eftir nokkurn atgang í teignum. Bayern búið að grafa sig upp úr holunni á aðeins 22 mínútum og miðað við þessa stöðu var liðið komið áfram. Veislunni var langt frá því að vera lokið því þriðja, og flottasta, skallamarkið kom nokkrum mínútum síðar og að þessu sinni skoraði Robert Lewandowski. Bæjarar voru langt frá því að vera hættir því Thomas Müller og Lewandowski skoruðu báðir fyrir hlé. 5-0 og verið að niðurlægja Porto. Bæði lið lögðu nánast niður vopnin í seinni hálfleik en Jackson Martinez náði inn einu sárabótarmarki fyrir Porto um miðjan síðari hálfleik. Möguleikar þeirra fuku svo endanlega út um gluggann er Marcano var vikið af velli nokkrum mínútum fyrir leikslok. Xabi Alonso lauk svo veislunni með frábæru marki beint úr aukaspyrnu. Fyrstu tvö mörk leiksins má sjá í spilaranum að ofan. Hin mörkin má sjá hér að neðan.3-0 fyrir Bayern. 4-0. Lewandowski skorar aftur. 5-0. 5-1. Sárabótarmark hjá Martinez. 6-1. Glæsimark hjá Xabi Alonso.
Fótbolti Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Sara Björk komin heim Sport Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Fótbolti Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Körfubolti Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Fleiri fréttir Grikkir gerðu Svíum grikk á lokasekúndum leiksins Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Óvíst hver tekur við af Schmeichel Sara Björk snýr heim í Hauka FIFA tók U-beygju og bannar vatnsflöskur „Eins og fjölskylda í sólarlandaferð“ Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri „Þetta voru ótrúlegir dagar, en líka alveg magnaðir dagar“ „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val HM-minning: Leið yfir móður hans þegar hún fékk fréttirnar Jelena kölluð inn í landsliðið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Er búinn að glíma við þunglyndi Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City „Stúkan er of þögul“ ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Sjá meira