Segir orðspor Real Madrid undir á Bernabéu í kvöld Tómas Þór Þórðarson skrifar 13. maí 2015 11:30 Daniel Carvajal dregur ekki úr mikilvægi leiksins. vísir/getty
Stórliðin Real Madrid og Juventus mætast í kvöld í seinni leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta. Juventus er 2-1 yfir eftir fyrri leikinn á heimavelli og verður Real Madrid því að vinna í kvöld til að komast áfram. Real Madrid gerði jafntefli við Valencia, 2-2, í spænsku 1. deildinni um helgina en Carlo Ancelotti, þjálfari liðsins, var engu að síður mjög ánægður með frammistöðu liðsins í þeim leik. „Okkur líður vel og ef við spilum á miðvikudaginn eins og við gerðum gegn Valencia fer allt vel,“ sagði Ancelotti við blaðamenn í gær. Real er fjórum stigum á eftir Barcelona á toppi spænsku deildarinnar og þurfa Börsungar aðeins á einum sigri að halda til viðbótar til að verða meistarar. Meistaradeildin er eini möguleiki Real á stórum titli í ár þar sem liðið er líka úr leik í spænska bikarnum, en þar mætir Barcelona liði Athletic Bilbao í úrslitum. „Orðspor okkar er undir í leiknum gegn Juventus. Fólkið veit af því og verður okkar tólfti maður,“ segir Daniel Carvajal, bakvörður Real Madrid. „Við gerðum allt sem við gátum gegn Valencia. Við hlupum og börðumst og það tekur sinn toll. Við ætlum samt að gera það sama gegn Juventus og fá fólkið með okkur,“ segir Carvajal.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Sjá meira