Gengur um og kemur plötunni út Gunnar Leó Pálsson skrifar 20. júlí 2015 10:30 Birgir Nielsen ásamt Viktori rakara og Viðari Togga en nafn plötunnar er sótt í nafnið á hárlit sem Viktor blandar sérstaklega fyrir hárið á Viðari. Mynd/Gunnar Ingi
Trommuleikarinn Birgir Nielsen hefur sent frá sér plötuna Svartur 2 sem er hans fyrsta sólóplata. Hann segir þetta framleiðslu beint frá býli og er hann að dreifa henni þessa dagana. „Þetta er svona beint frá býli framleiðsla og ég geng um og er að koma plötunni út sjálfur,“ segir Birgir, sem er líklega best þekktur fyrir að slá taktinn með hljómsveitum á borð við Land og syni, Vini vors og blóma og Klaufana svo nokkrar séu nefndar. Hann er ánægður með viðtökurnar sem platan hefur fengið. „Maður stendur á eigin fótum með þetta og þetta er vissulega nýtt fyrir manni. Þessu eru vel tekið og Eyjahjartað slær með manni. Fólk hefur komið til mín og spurt hvort þetta sé 40 mínútna trommusóló eða þjóðhátíðarlög sem er ekki reyndin. Lögin mín sjö á plötunni eru fönkaður djass af bestu gerð sem vonandi kemur skemmtilega á óvart,“ segir Birgir alsæll.Plötu Birgis Nielsen hefur verið vel tekið og hér er hann að árita plötuna í versluninni Sölku í Eyjum.mynd/gunnar ingiMeð honum á plötunni eru hljóðfæraleikarar í fremstu röð, Ásgeir Ásgeirsson og Eðvarð Lárusson á gítar, Haukur Gröndal á saxófón og þverflautu, Steinar Sigurðsson á saxófón og Snorri Sigurðsson á trompet, Kjartan Valdimarsson og Stefán Örn Gunnlaugsson á píanó og sjálfur sér Birgir um trommur og slagverk. Alls spila fjórir bassaleikarar inn á plötuna, þeir Friðrik Sturluson, Tómas Tómasson, Jóhann Ásmundsson og Georg Bjarnason. „Það er ekki verra að vera með landsliðið í bassaleik á plötunni,“ segir Birgir og hlær. Hann hefur unnið að plötunni í langan tíma. „Elsta stöffið á plötunni er í hátt í tíu ára gamalt.“ Hann hlakkar til að flytja efni plötunnar á tónleikum og ætlar að halda útgáfutónleika í september á Háaloftinu í Vestmannaeyjum og þá verða einnig tónleikar í Reykjavík og á Akureyri. Platan fæst í Lucky Records og einnig hjá Birgi.
Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Sjá meira