Mark Roger Canas tryggði Astana fyrsta stig sitt í Meistaradeild Evrópu í 2-2 jafntefli gegn Galatasaray í dag.
Tyrkneska liðið komst yfir í tvígang en leikmönnum Astana tókst að svara í bæði skiptin. Kom seinna jöfnunarmarkið á lokamínútu venjulegs leiktíma í seinni hálfleik.
Astana og Galatasaray eru því með eitt stig að tveimur umferðum loknum en toppliðin tvö, Atletico Madrid og Benfica, eigast við í kvöld.
