Adolf segist í samtali við Vísi hafa stýrt námskeiðinu sem verið hafi á vegum alþjóðasamtökum íþróttafréttamanna (AIPS) og Alþjóða handknattleikssambandsins (IHF).
„Það voru fyrirlestrar fyrri part dags og seinni partinn fóru krakkarnir í hallirnar þrjár, skrifuðu leikskýrslur og tóku viðtöl sem voru birt á heimasíðu IHF,“ segir Adolf Ingi í samtali við Vísi.
Þetta er í fimmta skiptið sem Adolf Ingi kennir á námskeiði sem þessu en þau hafa verið haldin í sjö skipti.
Íslenska landsliðið mætir því danska í sextán liða úrslitum á HM í dag. Adolf Ingi verður ekki á meðal áhorfenda því hann er kominn heim.
„Ég er að vinna í því að koma upp útvarpsstöðinni,“ segir Adolf Ingi sem hyggur á rekstur útvarpsstöðvar á ensku fyrir erlenda ferðamenn. Hann er kominn með útvarpsleyfi og mikil vinna í gangi en Vísir greindi frá áætlunum Adolfs í nóvember.
„Ég mátti alls ekkert við því að vera lengur þarna úti.“
Sem kunnugt er lenti Adolf Ingi í þeirri einkennilegu stöðu að fjölmiðlapassinn hans var tekinn af honum úti í Katar í síðustu viku. Fyrir vikið komst hann ekki á landsleik Íslands gegn Egyptalandi um helgina.
Adolf Ingi birti í gær mynd af passa öryggisvarðarins sem tók af honum passann.
„The biggest asshole in Qatar? Yeah probably,“ skrifar Adolf Ingi við myndina. Hann deildi í opinni Fésbókarfærslu á miðvikudaginn í síðustu viku að um hefði verið að ræða skoðunarmun á því hvað mætti taka með sér inn í höllina og hvað ekki.
Adolf Ingi er léttur yfir uppákomunni í samtali við Vísi.
„Ég var hvort eð er á leiðinni heim. Þetta skipti voðalega litlu,“ segir hann á léttum nótum. Hann kýs þó að ræða ekki frekar umrætt mál.

Strákarnir okkar verða án Arons Pálmarssonar í leiknum gegn Dönum í dag klukkan 18. Adolf Ingi segist því miður ekki vera mjög bjartsýnn fyrir leikinn.
„Ég held að Gummi hafi betur gegn sínu gamla liði. Danirnir eru einfaldlega með sterkara lið en við í dag. Ef þeir spila af eðlilegri getu ættu þeir að vinna þetta. Danir eru með eitt af þremur til fjórum bestu liðum í heimi. Við komum í næsta flokki þar á eftir. Sem er ekki slæmt,“ segir Adolf Ingi.
Hann segir Ísland eiga tvo, jafnvel þrjá menn í heimsklassa, og Aron sé einn þeirra auk Guðjóns Vals og Alexanders Peterssonar.
„Það er náttúrulega hrikalegt að missa Aron og rosalegt skarð að fylla.“
Til samanburðar séu Danir með að minnsta kosti fimm leikmenn í heimsklassa. Hornamennirnir tvo Mikkel Hansen, Landin í markinu og Jesper Nöddesbo.
„Svo getur vel verið að ég sé að gleyma einhverjum.“