Dæmdur fyrir að saka lögreglumann um kynferðisleg skilaboð til táninga Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 17. júlí 2015 11:00 Um eitt þúsund manns búa á Eskifirði. Vísir/Pjetur
Emil K. Thorarensen, íbúi á Eskifirði, hefur verið dæmdur fyrir meiðyrði í garð lögreglumanns í sama bæ. Ákært var fyrir sjö ummæli í garð lögreglumannsins. Tveimur þeirra var vísað frá og sýknað vegna fjögurra ummæla þar sem lögreglumaðurinn var sakaður um einelti í garð Emils og sonar hans. Hins vegar var sakfellt fyrir ummæli sem fólu í sér ásökun um að lögreglumaðurnn hefði sent ungmennum á táningsaldri eftirfarandi kynferðisleg skilaboð: „Hefur að sögn, sent táningum og unglingsstelpum kynferðisleg skilaboð og jafnframt boðið þeim upp á „afslátt“ gegn ???“ Ummælin lét Emil falla á opinni Fésbókarsíðu sinni í maí 2013 en þau voru fjarlægð af síðunni nokkrum dögum síðar. Lögreglumaðurinn kærði ummælin til lögreglu og ákvað ríkissaksóknari að gefa út ákæru í september 2014. Hélt Emil því fram að um opið bréf til lögreglustjórans á Eskifirði.Vísaði í vitneskju heimildarmanns frá fyrstu hendiÍ niðurstöðu Héraðsdóms Austurlands segir að fyrri málsliðurinn feli í sér ásökun um að lögreglumaðurinn hafi sent ungmennum á táningsaldri, 13-19 ára, kynferðisleg skilaboð. Emil neitaði að útskýra hvað hann meinti með spurningamerkjunum en dómurinn segir ummælin vekja, hlutlægt séð í tengslum við fyrri hluta setningarinnar, óhjákvæmilega hugrenningar hvers sem þau les um að átt sé við háttsemi af kynferðislegum toga.Sjá einnig:Þurfti að útskýra ásakanirnar fyrir tengdó „Orðin „afslátt gegn“ vekja að auki hugrenningar um misnotkun á stöðu hans sem lögreglumanns. Framsetning ummælanna í heild er ótvírætt á formi staðhæfingar um staðreynd, þótt með orðunum „að sögn“ sé til þess vísað að upplýsingarnar séu ekki frá ákærða sjálfum komnar. Þótt ekki verði fullyrt að í ummælunum felist ásökun um refsiverða háttsemi, er hér um sérlega alvarlega og meiðandi ásökun í garð lögreglumannsins að ræða,“ segir í niðurstöðu héraðsdóms. Emil fullyrti að til grundvallar ummælunum væru orð ónafngreinds milliliðs sem hefði þær beint frá viðkomandi þolendum fleiri en einum.Héraðsdómur Austurlands er á Egilsstöðum..Vísir/PjeturSá engin skilaboð„Ákærði kvaðst aðspurður ekki hafa rætt sjálfur við neina þolendur. Ekki hélt hann því heldur fram að hafa sjálfur séð nein kynferðisleg skilaboð sem brotaþoli ætti að hafa sent þolendum eða að heimildarmaður hans hefði sagst hafa séð slík skilaboð,“ segir í dómnum. Því hefðu ekki verið færð nein rök fyrir því að hann hefði mátt treysta orðum heimildarmanns síns. Ákærði mætti gera sér grein fyrir því að hann sjálfur teldist ekki hlutlaus í garð brotaþola er hann ritaði og birti ummæli sín. Því hafi honum borið að sýna sérstaka aðgætni við mat á réttmæti upplýsinga heimildarmannsins.Sjá einnig: Sakaði lögreglumann um framhjáhald og kynferðisbrot Dómurinn taldi því að ákærði Emil hefði ekki fært sönnur á efni ummælanna. Ummælin voru úr hófi fram með tilliti til þess framburðar hans að með orðunum „táningum og unglingsstelpum“ hefði hann átt við konur allt að 30 til 35 ára aldri. Var hann því sakfelldur fyrir ummælin.Ummæli innan marka tjáningarfrelsisEmil var hins vegar sýknaður af ákæru vegna fjögurra ummæla sem sneru að meintu einelti lögrelgumannsins, nefndur A í dómnum: 1) „Hann ([A], sem þú réðst hingað til starfa og haldið hefur verndarvæng yfir) er þekktur fyrir sitt einelti í garð almennra borgara eftir að hann gekk í lögregluna.“ 2) „[A] mun halda áfram sínu einelti, í garð samborgara sinna, þegar hann hefur stöðu til þess. Hann hefur ekki vit á öðru meðan hann kemst upp með það og yfirmenn hans halda hlífðarskyldi yfir honum.“ 3) „[A] mun halda áfram eineltinu gagnvart aðilum meðan hann kemst upp með það. Hann hefur ítrekað sýnt það í verkum, sem gjörðum.“ 7) „Hann mun halda áfram eineltinu, sem lögreglumaður og hefur ekki vit á að hætta því misnota sína stöðu meðan yfirmenn hans grípa ekki í taumana, og hann kemst upp með a það, […]“.“ Þótti gildisdómurinn í ummælunum að ofan vera innan þeirra marka sem tjáningarfrelsið veiti. Var Emil dæmdur til að greiða 30 þúsund krónur í sekt í ríkissjóð og auk þess 150 þúsund krónur í miskabætur til lögreglumannsins. Sá hafði farið fram á 300 þúsund krónur í bætur.Dóminn í heild sinni má lesa hér.
Tengdar fréttir Þurfti að útskýra ásakanir um kynferðisleg SMS til táningsstelpna fyrir tengdó "Hann er að ýja að því að ég sé að senda unglingum kynferðisleg skilaboð. Þetta er með ólíkindum, að maðurinn skuli leyfa sér að skrifa þetta á opinberum vettvangi,“ segir lögreglumaður á Eskifirði. 26. maí 2015 11:45 Sakaði lögreglumann um einelti, framhjáhald og kynferðisbrot Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur karlmanni á sjötugsaldri fyrir ærumeiðandi aðdróttanir á Facebook. 25. febrúar 2015 08:30 Mest lesið Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar Innlent Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Erlent Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Innlent „Þetta er bara ljótt“ Innlent „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Innlent Málið sem Trump getur ekki losað sig við Erlent Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Innlent Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Erlent Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Færir nýársboðið fram á þrettándann Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu á Suðurlandi Leggur aftur til hverfislögreglustöð í Breiðholti Nú má heita Love, Tóní, Ranimosk og Draumur Kvartar til umboðsmanns og vonar að Vegagerðin sjái að sér Ætlar ekki að beita sér í máli starfsmanns Útlendingastofnunar „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Gyðingar á Íslandi upplifa aukinn ótta Ferðaþjónusta blómstrar í uppsveitum Árnessýslu „Þetta er bara ljótt“ Hljóti að vera komið að því að skoða öryggisgæslu við skóla Ætlar að skýra hvenær rjúfa megi þagnarskyldu Þagnarskylda heilbrigðisstarfsfólks og öryggisgæsla við grunnskóla Eyjólfur í orlof og Inga þrefaldur ráðherra Vegagerðin segir flóðin í Vík fyrirséð Fjölmiðlar, bókmenntir og hægrimennska á Sprengisandi „En hver sagði að þetta ætti að vera auðvelt?“ Milljónir til almannatengla og átta sinnum meira en í fyrra Grunuð um að koma til landsins til að brjóta á öldruðum Leggja hald á skip á alþjóðahafsvæði undan ströndum Venesúela Bindur vonir við Vor til vinstri Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Íslendingar þægileg fórnarlömb fyrir vasaþjófa „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Vonbrigði í Vík og rýnt í Epstein-skjölin Morgundagurinn sá stysti á árinu Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Sjá meira
Þurfti að útskýra ásakanir um kynferðisleg SMS til táningsstelpna fyrir tengdó "Hann er að ýja að því að ég sé að senda unglingum kynferðisleg skilaboð. Þetta er með ólíkindum, að maðurinn skuli leyfa sér að skrifa þetta á opinberum vettvangi,“ segir lögreglumaður á Eskifirði. 26. maí 2015 11:45
Sakaði lögreglumann um einelti, framhjáhald og kynferðisbrot Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur karlmanni á sjötugsaldri fyrir ærumeiðandi aðdróttanir á Facebook. 25. febrúar 2015 08:30