Stjörnubanarnir héldu hreinu í hitanum og komust áfram Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. ágúst 2015 18:33 Mark Dedryck Boyata í fyrri leiknum kom Celtic áfram. Vísir/Getty
Skosku meistararnir í Celtic eru komnir áfram í umspil um laust sæti í Meistaradeildinni í fótbolta eftir markalaust jafntefli í Aserbaídsjan í dag. Celtic sló þar með lið Qarabag frá Aserbaídsjan út á eina markinu sem var skorað í fyrri leik liðanna á Celtic Park. Markið skoraði Dedryck Boyata. Dedryck Boyata var líka á skotskónum í 2-0 sigri á Stjörnunni í fyrri leik liðanna á Celtic Park en Celtic-liðið vann 6-1 samanlagt eftir 4-1 sigur í seinni leiknum á Samsungvellinum. Celtic-liðið fékk fullt af færum í seinni hálfleik til að skora markið sem hefði gulltryggt sætið í umspilinu en það kom ekki að sök. Heimamenn ógnuðu Skotunum aldrei að neinu ráði í leiknum. Leikurinn fór fram við krefjandi aðstæður þar sem mikill hiti var í Bakú í kvöld. Astana frá Kasakstan komst fyrr í dag áfram í sömu keppni eftir 4-3 sigur á finnska liðinu HJK út í Kasakstan en liðin gerðu markalaust jafntefli í fyrri leiknum í Finnlandi. HJK komst í 2-0 í fyrri hálfleik en Astana tókst að tryggja sér dramatískan sigur eftir að hafa misst mann af velli með rautt spjald þegar tuttugu mínútur voru eftir. Evgeni Postnikov skoraði sigurmarkið á þriðju mínútu uppbótartíma en 3-3 jafntefli hefði nægt finnska liðinu til að fara áfram á fleiri mörkum á útivelli.
Fótbolti Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Fleiri fréttir Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Sjá meira