Bíó og sjónvarp

Hvoru megin stendur þú?

Samúel Karl Ólason skrifar
Þangað til við getum byggt okkar eigin geislasverð hafa framleiðendur Star Wars, í samstarfi við Facebook, gert okkur kleift að bæta slíkum sverðum við prófílmynd okkar á Facebook. Það er gert með einföldu tóli sem birt var á Facebooksíðu Star Wars.

Þá er einnig hægt að velja á milli tveggja sverða. Um er að ræða sverð Finn annars vegar, reyndar er hægt að halda því fram að Darth Vader eigi það, og hið einkennilega sverð Kylo Ren.

Sjá einnig: Sjöunda Stjörnustríðsmyndin fær glimrandi viðtökur eftir forsýninguna

Það eina sem fólk þarf að gera er að klikka á „Try it“ hnappinn í færslunni sem sjá má hér að neðan. Þá þarf að velja þar hvort sverðið fólk vill nota og stilla upp myndinni.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×