Lífið

Purumenn með magnaða útgáfu af jólalaginu sem allir elska

Stefán Árni Pálsson skrifar
Myndbandið er virkilega skemmtilegt.
Myndbandið er virkilega skemmtilegt. vísir
Jólasveitin Purumenn sendu í gær frá sér sýna eigin útgáfu af laginu Fyrir jól. Upphaflega gerðu feðginin Björgvin Halldórsson og Svala Björgvinsdóttir lagið ódauðlegt á sínum tíma.

Í sveitinni Purumenn eru þau Gunnar Ragnarsson, Tumi Árnason sem eru einnig í Grísalappalísu og síðan Steinunn Harðardóttir sem er einnig þekkt sem dj flugvél og geimskip.

Lagið er frábært og myndbandið enn betra. Ef þú vilt komast í jólaskap horfðu þá á myndbandið hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×