Bíó og sjónvarp

Bestu og verstu kvikmyndir 2015 - Nefndin kveður upp dóm sinn

Baldvin Z og Andri Óttarsson og Jóhann Ævar Grímsson skrifa
Jóhann Ævar, Baldvin Z og Andri Óttarsson velja það besta og versta á árinu, ásamt því að benda á nokkrar góðar myndir sem eru á leiðinni.
Jóhann Ævar, Baldvin Z og Andri Óttarsson velja það besta og versta á árinu, ásamt því að benda á nokkrar góðar myndir sem eru á leiðinni. Vísir/Ernir
10 bestu erlendu bíómyndir 2015

Ex Machina



Óaðfinnanlega smíðuð saga um mörkin milli mennsku og gervigreindar sem kemur stöðugt á óvart. Höfundurinn Alex Garland sest hér í fyrsta skiptið í leikstjórastólinn og býr til þetta þvílíka meistaraverk.



 




Star Wars The Force Awakens

JJ Abrams nær hér að fanga aftur þá töfra sem gerðu Star Wars bálkinn að einum mikilvægasta menningarstólpa síðustu kynslóða. Gömul andlit og ný halda uppi frábærri atburðarrás í vetrarbraut langt langt í burtu. Einn afar jákvæður spoiler; það er enginn Jar Jar.

 


Sicario

Stríði Bandaríkjamanna gegn fíkniefnum gerð átakanleg skil í þessari kröftugu ádeilu þar sem skilinn milli góðs og ills eru ekki til staðar. Vekur upp áleitnar spurningar um hina vonlausu baráttu vesturlanda gegn fíkniefnavandanum.



 

Steve Jobs

Algjör andstaða við Ashton Kutcher lestarslysið í kvikmyndinni Jobs frá 2013. Frábær mynd og höfundurinn Aaron Sorkin líklega með sín bestu skrif frá fyrstu þáttaröðinni af West Wing.





Straight out of Compton


Ótrúlega skemmtileg mynd um hina mögnuðu hljómsveit NWA og sögu rapparans Eazy E. Skemmtileg sýn á þetta tímabil í tónlistarsögunni sem er gerð af virðingu fyrir bæði hljómsveit og aðdáendum. Og með óaðfinnanlegu tónlistarvali.

 



Inside Out

Pixar tekst að skapa eina hjartnæmustu og tilfinningaríkustu mynd ársins með því að gægjast bakvið luktar dyr sálarlífs kornungrar stelpu sem flytur í nýja borg. Mynd sem tosar mjög viljandi í alla hjartans strengi og nær að myndgera þá djúpstæðu veröld sem býr í hugum okkar allra.



 



Beasts of No Nation

Ískaldur raunveruleiki barnahermanna í Afríku gerð virkilega góð skil í þessari stórbrotnu mynd. Hún fer með mann í hrikalegt ferðalag sem er erfitt að skilja eða vilja trúa sé raunveruleikinn. Átakanleg mynd sem vekur bæði upp reiði og sorg.





The Martian

Matt Damon er farinn að gera það að vana sínum að gleymast úti í geimi en hér er þó á ferðinni ein vandaðasta vísindaskáldsagnakvikmynd síðari ára þar sem hugvit og vísindi bjarga deginum. Leikstjórinn Ridley Scott bætir hér ríflega fyrir viðbjóðinn í Exodus: Gods and Kings.





Mad Max - Fury Road

George Miller, leikstjóri fyrri myndanna um Óða Max snýr hér aftur með glæsilega endurfæðingu sagnabálksins sem keyrir á áhorfendur með sturluðu sjónarspili, femíniskum undirtónum og einni svölustu kvenhetju síðari ára. Já og töffaraömmum á mótorhjólum.

 


It Follows

Snjöll og fáguð hryllingsmynd þar sem óhugnanlegt skrímsli smitast milli fólks eins og kynsjúkdómur. Heldur manni á ystu nöf fram á síðustu mínútu og óttinn og paranojan hrella áhorfendur löngu eftir að ljósin eru kveikt í salnum.





Desembermyndir sem dómnefndin hlakkar til að horfa á um jólin: 

The Revenant





Hateful 8



The Big Short







Creed







Anomalisa







Macbeth







 

5 verstu erlendu bíómyndirnar:

Fantastic Four

Þegar sjálfur leikstjórinn afneitar myndinni sinni á opinberum vettvangi er hægt að reiða sig á að þar sé ósvikinn klepri á ferð. Og þessi mynd stendur undir vonbrigðum með glæsibrag. 





Mortdecai

Johnny Depp leikur enn einn furðufuglinn í ævintýralega gleymanlegri mynd sem nær einhvernveginn bæði að móðga og svæfa áhorfendur með þvælulegu plotti og óspennandi og fíflalegri persónusköpun.







Fifty Shades of Grey

Illa skrifað húsmæðraklám E.L. James  var loksins myndgert í þessari klunnalegu og ósexí mynd um ósannfærandi milljónamæring sem eltihrellir persónuleikalausa stúlku og aulahrellir áhorfendur. Fyrir þá sem hrífast af þeim ranghugmyndum sem þarna eru bornar á borð um samskipti kynjanna viljum við benda á að þetta er bara bíómynd . . . mjög mjög léleg bíómynd.





 

Ridiculous Six

Rasísk, heimskuleg og slæm mynd með Adam Sandler. Með öðrum orðum enn ein Adam Sandler mynd. Ákveðið blað þó brotið þar sem þetta er fyrsta Netflixmyndin sem fyrirtækið reynir vísvitandi að fela fyrir notendum sínum. Stærsta spurningin er hvað hann Sandler hefur á Steve Buscemi sem veldur því að hann mætir aftur og aftur til að láta niðurlægja sig.



 

The Cobbler

Önnur rasísk, heimskuleg og slæm mynd með Adam Sandler. Ertu til í að hætta þessu Adam Sandler? Í alvörunni! Já og láttu Steve Buscemi í friði.





 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×