Bíó og sjónvarp

George Lucas segir skoðun sína á nýju Star Wars-myndinni

Birgir Olgeirsson skrifar
George Lucas.
George Lucas. Vísir/Getty
Nú þegar styttist í frumsýningu á sjöundu Stjörnustríðsmyndinni, The Force Awakens, hafa ansi margir áhuga á að vita hvað George Lucas, sá sem skapaði Stjörnustríðsheiminn á áttunda áratug síðustu aldar, finnst um þessa mynd.

Hún verður sú fyrsta sem Lucas kemur ekki nálægt en hann seldi fyrirtækið sitt Lucasfilm til Disney árið 2012 fyrir fjóra milljarða dala en með fyrirtækinu fylgdi rétturinn að Stjörnustríðsmyndunum.

Forstjóri Lucasfilm í dag, Kathleen Kennedy, sagði nýverið við fjölmiðla vestanhafs að Lucas hefði séð The Force Awakens og að honum hefði líkað hún.

Fjölmiðlar náðu síðan í skottið á Lucas síðastliðinn sunnudag þegar hann var heiðraður fyrir framlag sitt til menningar og lista á lífsleiðinni í Kennedy Center í Washington. Hann staldraði við nógu lengi á rauð dreglinum til að svara spurningunni hvernig honum hefði líkað við sjöundu myndina.

„Ég held að aðdáendur eigi eftir að elska hana. Þetta er myndin sem þeir hafa beðið eftir,“ svaraði Lucas. Hafa margir fjölmiðlar reynt að túlka þessi orð Lucas, hvort honum líkaði myndin eða ekki. Hann sagði ekki beint að honum sjálfum líkaði hún en sagði hins vegar að hún væri þannig gerð að aðdáendur ættu eftir að elska hana.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×