Játning liggur fyrir í hrottalega ráninu í Gullsmiðjunni Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. desember 2015 10:25
26 ára karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 1. janúar grunaður um að hafa skipulagt rán í skartgripaversluninni Gullsmiðjunni í Hafnarfirði 22. október síðastliðinn. Hann var handtekinn að kvöldi sama dags eftir að hafa skotið að lögreglumönnum sem höfðu uppi á honum í Keflavík. Maðurinn neitaði sök í málinu allt þar til í skýrslutöku þann 30. nóvember þegar hann játaði aðild sína í málinu. Var hann einn tveggja sem fóru inn í Gullsmiðjuna og er manninum gefið að sök að hafa ógnað starfsmanni, konu á sextugsaldri með öxi. Flóttaleið mannanna frá Hafnarfirði og að Grindavíkurafleggjara.Kort/Loftmyndir.is Konan komst undan á hlaupum. Lögreglan í Hafnarfirði lýsti ráninu sem hrottafengnu en mennirnir óku í burtu með ránsfeng sinn í hvítum Nissan jepplingi á ofsahraða. Hinn maðurinn hefur einnig játað aðild sína að málinu. Bíllinn var skilinn eftir við Grindavíkurafleggjara þar sem þriðji maður beið. Hinn 26 ára ku hafa verið í skuld við þriðja manninn og ætlað að nota ránsfenginn til að greiða upp skuld að því er fram hefur komið í skýrslutökum. Aðeins lítill hluti þýfisins hefur fundist. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 23. október, fyrst á grundvelli rannsóknarhagsmuna en frá 6. nóvember með tilliti til almannahagsmuna. Talið er nauðsynlegt að hann gangi ekki laus á meðan mál hans er til meðferðar. Féllst héraðsdómur á þessi rök lögreglu og sömuleiðis Hæstiréttur. Verður hann því í gæsluvarðhaldi út árið og einum degi betur. Dóm Hæstaréttar má lesa hér.
Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira