Guðjón líkir Gylfa við Beckham: Þurfti að sækja hann út á völl og biðja hann um að hætta Tómas Þór Þóraðrson skrifar 2. október 2015 15:15 Gylfi Þór Sigurðsson hefur lagt gríðarlega mikið á sig á sínum ferli eins og David Beckham gerði. vísir/getty
Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður í fótbolta, hóf atvinnumannaferil sinn hjá Reading á Englandi, en hann skaust upp á stjörnuhiminninn með frábærri frammistöðu í B-deildinni tímabilið 2009/2010. Hann steig sín fyrstu skref í aðalliði þegar hann fór á lán til Shrewsbury á láni í október 2008 í einn mánuð, en í febrúar 2009 fékk Guðjón Þórðarson hann á láni til Crewe Alexandra í ensku C-deildinni.Sjá einnig:Gylfi hefur mætt Neuer, Cech og De Gea en Gomes er besti markvörðurinn Gylfi, sem var þá 19 ára gamall, stóð sig mjög vel með Crewe og skoraði þrjú mörk í 22 leikjum undir stjórn Guðjóns sem fer fallegum orðum um Gylfa í nýrri bók um landsliðsmanninn, Atvinnumaðurinn Gylfi Sigurðsson. Í kaflanum Úr dreng í mann segir Guðjón frá því að Gylfi fékk alltaf far með honum á æfingar því hann vildi vera mættur snemma.Guðjón Þórðarson fékk Gylfa Þór til Crewe.vísir/getty„Hann fór fyrstur út á æfingasvæðið og var síðastur inn. Ég hef kallað „að að taka Beckham á hlutina“,“ segir Guðjón um Gylfa Þór. „Við vorum með þrjá boltapoka með tíu boltum í. Gylfi tók alltaf einn pokann og var áfram eftir æfingu að reyna að bæta sig.“Sjá einnig:Gylfi Þór: Skrítið að spila undir stjórn mesta grínarans í liðinu „Daginn fyrir leik varð maður að fara og sækja hann út á völl og segja við hann að nú væri þetta komið gott en þá var Gylfi eins og krakki sem var að leika sér úti á velli. Hann hafði svo gaman að því sem hann var að gera,“ segir Guðjón Þórðarson. Þessi lánssamningur varð kveikjan að upprisu Gylfa Þórs, en á næsta tímabili sló hann í gegn með Reading og var þaðan keyptur til Hoffenheim í Þýskalandi fyrir sjö milljónir punda. Meira um það má lesa í bókinni Atvinnumaðurinn Gylfi Sigurðsson.
Enski boltinn Mest lesið Kane skrifaði undir samning á lokahófi Grindavíkur Körfubolti Tveir Færeyingar til silfurliðsins Handbolti Uppgjör: FH - Fram 3-3 | Ótrúleg endurkoma Fram í Krikanum Íslenski boltinn „Veit ekki hvaðan þetta kom allt frá okkur“ Íslenski boltinn „Eftir að við fengum á okkur fyrsta markið slökktum við á okkur“ Íslenski boltinn Pressa Þjóðverja bar loks árangur Fótbolti Benedikt tekinn við Stólunum Körfubolti Njarðvíkingar rústuðu Þórsurum Íslenski boltinn Fyrstu sigrar Aftureldingar og Þróttar Íslenski boltinn Hnéskel Kristófers fór í tvennt Körfubolti Fleiri fréttir Bellamy tekur tímabundið við en Lampard er líklega langtímalausnin Red Bull ryður sér til rúms í enska boltanum Breyta deildabikarnum til að létta á leikjaálagi bestu liðanna Samkeppnin eykst hjá Hákoni um markmannstöðu Brentford Einn af hverjum fimm atvinnumönnum notar nikótínpúða Ten Hag gæti þurft að bíða lengi eftir ákvörðun um framtíð sína Klopp til í skrúðgöngu missi Man. City tvo titla til Liverpool UEFA gæti fært United í Sambandsdeildina Njósnarar Liverpool áttu að fylgjast með Koopmeiners en hrifust að öðrum Edu getur ekki sagt það sem hann langar að segja um City Ten Hag skýtur á Slot: „Fólk hefur látið of mikið með Feyenoord“ Rashford kveður samfélagsmiðla í bili og sendir smá pillu Kraftaverkamaðurinn Emery framlengir á Villa Park Chelsea í viðræður um kaup á stjóra Leicester Tekur ekki við Chelsea sem vill ráða nýjan stjóra í vikunni „Fullt af mistökum“ Southampton vann á Wembey og spilar í úrvalsdeildinni á næsta tímabili Stuttorður Guardiola: „Óskaði þeim til hamingju með frábært tímabil“ Rooney tekur við B-deildarliði Plymouth Fyrstu táningarnir síðan Ronaldo árið 2004 Ten Hag: Ósanngjörn gagnrýni á bæði mig og liðið allt Bikarmeistarinn Bruno: „Þurftum að fórna og þjást en við gerðum magnaða hluti“ Manchester United tryggði sér titil í lokaleik tímabilsins Vill losna frá Crystal Palace og kaupa Everton Stýrir leik á Stamford Bridge eftir að Chelsea rak hann Ten Hag telur öruggt að hann verði áfram á næsta tímabili Segja að Ten Hag verði rekinn sama hvernig úrslitaleikurinn fer Fernandes eyðir óvissunni: „Ég vil ekki fara“ Rooney gæti fengið nýtt starf þrátt fyrir hræðilegan árangur síðast Harry Maguire missir af bikarúrslitaleiknum Sjá meira