Njarðvíkingar rústuðu Þórsurum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. maí 2024 20:03 Njarðvíkingar eru með þriggja stiga forskot á toppi Lengjudeildar karla. njarðvík Njarðvík gerði sér lítið fyrir og valtaði fyrir Þór, 5-1, þegar liðin áttust við suður með sjó í Lengjudeild karla í kvöld.
Njarðvíkingar hafa heldur betur byrjað tímabilið vel og eru nú með þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar. Strákarnir hans Gunnars Heiðars Þorvaldssonar hafa unnið fjóra af fimm leikjum sínum og gert eitt jafntefli. Njarðvík byrjaði leikinn í kvöld af krafti og náði forystunni strax á 3. mínútu þegar Dominik Radic skoraði. Kaj Leo í Bartalsstovu bætti öðru marki við eftir tuttugu mínútur og staðan í hálfleik 2-0, heimamönnum í vil. Birkir Heimisson minnkaði muninn fyrir Þórsara á 62. mínútu og hleypti spennu í leikinn. En Njarðvíkingar endurheimtu tveggja marka forskot þegar Oumar Diouck skoraði á 77. mínútu. Diouck lagði upp mark fyrir Freystein Inga Guðnason á 90. mínútu og skoraði svo sjálfur annað mark sitt í uppbótartíma. Þór fékk vítaspyrnu eftir fimmta mark Njarðvíkur en Rafael Victor skaut framhjá. Lokatölur því 5-1, Njarðvík í vil. Þetta var fyrsta tap Þórsara í sumar en þeir eru með sex stig í 4. sæti deildarinnar. Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Lengjudeild karla UMF Njarðvík Þór Akureyri Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira