Fótbolti

Rafræn leikskrá fyrir landsleikinn gegn Hvít-Rússum

Margrét Lára leikur landsleik númer 100 í kvöld.
Margrét Lára leikur landsleik númer 100 í kvöld. Vísir/Anton
Stelpurnar okkar í íslenska kvennalandsliðinu í knattspyrnu mæta Hvíta-Rússlandi í kvöld klukkan 18.45 á Laugardalsvelli en um er að ræða fyrsta leik liðsins í undankeppni EM 2017.

Íslenska liðið getur komist í þriðja sinn í röð á lokakeppni EM takist þeim að komast upp úr riðlinum að þessu sinni en Stelpurnar okkar voru í efsta styrkleikaflokki þegar dregið var í riðlana. Mega þær ekki við því að misstíga sig á heimavelli en þær hafa talað um að markmiðið sé að vinna riðilinn.

Í tilefni af því er komin út vegleg leikskrá þar sem lesa má viðtöl við þjálfara og fyrirliða sem og eru gagnlegar upplýsingar um leikinn og umgjörð leiksins.

Skýrsluna má lesa hér en nálgast má miða hér.


Tengdar fréttir

Þetta verður stór stund fyrir hana

Margrét Lára Viðarsdóttir leikur í kvöld sinn 100. landsleik þegar Ísland tekur á móti Hvíta-Rússlandi í undankeppni EM 2017.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×