Fótbolti

Sjáðu öll mörkin úr Meistaradeildinni í gær

Fyrri leikirnir í fyrstu leikviku Meistaradeildar Evrópu í fótbolta fóru fram í gær og var mikið fjör. Sjaldan hafa sést jafn margar vítaspyrnur í átta fótboltaleikjum, en heilar þrjár voru dæmdar á Borussia Mönchengladbach.

Manchester-liðin áttu bæði slæman dag og töpuðu. United tapaði gegn PSV í Eindhoven og City tapaði á heimavelli gegn Ítalíumeisturum Juventus.

Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður Breiðabliks, og Arnar Gunnlaugsson, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður, voru gestir Meistaramarkanna í gærkvöldi.

Þeir fóru yfir alla leikina og mörkin, en þáttinn má sjá í heild sinni hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×