Rammskakkir Rúnar og Bubbi hittu íslenskan fjölmiðlamann í Rauða hverfinu Jakob Bjarnar skrifar 30. ágúst 2015 19:08 Bubbi og Rúnar frá GCD-árunum en Bubbi kann að segja sögur af ferðum þeirra félaga um Rauða hverfið í Amsterdam, og gerir það með tilþrifum á SnapChat.
Bubbi Morthens greinir frá því að hann, og Rúnar heitinn Júlíusson tónlistarmaður, hafi eitt sinn verið á ferð í Rauða-hverfinu í Amsterdam, því alræmda melluhverfi í Hollandi, hvar þeir fyrir íslenskan fjölmiðlamann. Það fylgdir sögunni að Bubbi og Rúnar hafi verið rammskakkir, af kannabisneyslu. Fjölmiðlamanninum varð mikið um að hitta þá félaga og hélt því fram við þá að hann væri þar eingöngu á kvöldgöngu en það væri þannig með sig að hann fengi martraðir eftir að hafa borðað indónesískan mat. Það fylgir hins vegar ekki sögunni hver maðurinn er. Allt þetta kemur fram á SnapChat-reikningi Bubba, Bubbinn, þar sem tónlistarmaðurinn fer mikinn. Hann fer með textabrot úr söngbók hljómsveitarinnar GCD, þar sem þeir Rúnar fóru fyrir flokki. Bubbi og Rúnar fóru einmitt fræga ferð til Amsterdam sérstaklega til að semja tónlist og texta. Fyrir dyrum standa tónleikar undir merkjum GCD og mun Pálmi Gunnarsson fara í skó Rúnars; leika á bassa og syngja. SnapChat forritið virkar þannig að senda má frá sér stutt myndskeið til vina sinna sem svo eyðast. Bubbi sendir frá sér brot nú af miklum móð og er frásagnagleði Bubba slík að hann sendir á stundum frá sér mörg brot í senn. Frásögnin af þessum fundum tónlistarmannanna og hins ónefnda íslenska fjölmiðlamanns lýkur með yfirlýsingu Bubba þess efnis að þangað hafi þeir félagar einungis verið í menningarlegum erindagjörðum. Og hann sé sannfærður um að téður fjölmiðlamaður fái taugaáfall í hvert skipti sem rödd Bubba komi í útvarpinu; líkast til þá af ótta við að hugsanlega færi frásögnin af tíðum ferðum hans í hverfi vændiskvenna á flug.
Tengdar fréttir Bubbi kemur inn með látum á Snapchat Yrkir, boxar og plöggar. 28. ágúst 2015 14:32 Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Lífið samstarf Fleiri fréttir „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Sjá meira