Lífið

Jóhann Alfreð fær aðstoð við upphífingarnar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Jóhann Alfreð tekur á því fyrir UN Women.
Jóhann Alfreð tekur á því fyrir UN Women.
Þriðja myndbandið frá UN Women á Íslandi vegna  átaksins HeForShe  hefur litið dagsins ljós. Í því má sjá grínistann Jóhann Alfreð taka á því í ræktinni með Gísla Erni Reynissyni, betur þekktur sem OfurGísli.

Félagarnir taka saman á því ræktinni í myndbandinu sem er hluti af sex örmyndböndum sem gerð voru í tilefni HeForShe. Í myndböndunum er búið að para saman ólíka einstaklinga í skemmtilegum aðstæðum en markmið herferðarinnar er að hvetja karlmenn til þátttöku í baráttunni fyrir kynjajafnrétti í heiminum.

Myndbandið má sjá hér að neðan. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×