Heimavöllurinn gefið lítið í fyrstu tveimur umferðum Pepsi-deildarinnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. maí 2015 08:00 Leiknir tapaði sínum fyrsta heimaleik í efstu deild á mánudaginn. vísir/ernir
Heimavöllurinn hefur ekki verið að gefa Pepsi-deildarliðinum mikið í upphafi tímabilsins og svo lítið að tölfræðin segir að útiliðin hafi aldrei staðið sig betur í fyrstu tveimur umferðunum frá því að þriggja stiga reglan var tekin upp 1984. Útiliðin hafa náð í 69 prósent stiganna og skorað 63 prósent markanna í fyrstu tveimur umferðunum í Pepsi-deild karla í fótbolta. 22 stig hafa farið til útiliðanna í þessum tólf leikjum en heimaliðin hafa „bara“ náð í samtals tíu stig. Fjögur stiganna hafa komið í jafnteflum. Útilið hafa einu sinni áður náð í 22 stig í fyrstu tveimur umferðunum en það var sumarið 1987 þegar sjö af fyrstu tíu leikjum sumarsins unnust af útiliðunum. Markatalan var þó ekki eins óhagstæð heimaliðunum og í ár vegna þess að annar af sigrunum tveimur var 7-1 sigur Valsmanna á Keflavík á Hlíðarenda. Útiliðin hafa skorað 19 mörk í þessum tólf leikjum eða átta fleiri en heimaliðin. Útiliðin hafa aldrei skorað fleiri mörk í fyrstu tveimur umferðunum en þau gerðu einnig 19 mörk í fyrstu tólf leikjunum 2013. Markatala hefur aftur á móti aldrei verið hagstæðari fyrir útiliðin á sama tíma síðan þriggja stiga reglan var tekin upp 1984. Einu liðin sem hafa unnið á heimavelli til þessa í sumar eru Fjölnir (1-0 sigur á ÍBV) og FH (2-0 sigur á Keflavík) en sigrar þeirra komu á móti einu liðum deildarinnar sem hafa ekki náð í stig í fyrstu tveimur umferðunum. Öll lið hafa spila heimaleik nema Íslandsmeistarar Stjörnunnar sem eru reyndar með fullt hús og hreint mark eftir tvo útileiki. Fjölnir er eina liðið sem hefur bara spilað á heimavelli en Grafarvogsliðið er með fjögur stig eftir að hafa verið mínútum frá því að vinna annan heimaleikinn í röð í 1-1 jafnteflinu á móti Fylki. Þriðja umferðin fer öll fram á morgun, sunnudag, en þá mætast: Fylkir-ÍBV (klukkan 17.00), ÍA-Víkingur R., KR-Fjölnir, Stjarnan-Leiknir og Valur-FH (allir klukkan 19.15) og Keflavík-Breiðablik (kl. 20.00). Þar eru fjögur af þeim fimm neðstu á heimavelli.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Syrgja átján ára fimleikakonu Sport Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Enski boltinn Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Fótbolti Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Enski boltinn Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Cherki aðalmaðurinn í sigri City Enski boltinn Glímdi við augnsjúkdóm Sport Fleiri fréttir Þjálfar 2. flokk samhliða því að spila fyrir KR Færeysk landsliðskona til liðs við ÍBV Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Meira en 37 stöðugildi hjá Knattspyrnusambandi Íslands Óskar Hrafn um komu Arnórs Ingva: „Gífurlega dýrmætt fyrir KR“ Arnór Ingvi orðinn leikmaður KR Breiðablik kaupir Jónatan frá Norrköping Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Sjá meira