Hvenær kemur barnið í heiminn og hvað mun það heita? Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 22. apríl 2015 14:08 Breska þjóðin bíður í ofvæni eftir að Kate Middleton, hertogaynja af Cambridge, eignist sitt annað barn. vísir/getty
Breska þjóðin bíður í ofvæni eftir að Kate Middleton, hertogaynja af Cambridge, eignist sitt annað barn. Ekki hefur verið greint frá settum degi en konungsfjölskyldan hefur sagt að von sé á barninu um miðjan eða lok apríl. Fjölmiðlar ytra slá því upp að von sé á barninu á allra næstu dögum. Undanfarna tvo daga hafa hennar allra hörðustu aðdáendur komið sér fyrir við St. Mary‘s spítalann í Paddington-hverfi Lundúnarborgar, þar sem Kate hyggst eiga barnið. Virðast þeir hafa komið sér nokkuð vel fyrir og hafa sett þar upp borð, stóla og tjöld. Lögregla hefur því gripið til ýmissa ráðstafana og meðal annars sett upp öryggisgirðingar umhverfis sjúkrahúsið.Veðbankar telja að barnið muni koma í heiminn 25.aprílBarnið mun fæðast á einkareknum lúxus-spítalaTalið er að barnið hljóti nafnið Alice eða ArthurEinkarekinn lúxusspítali Öll börn konungsfjölskyldunnar hafa fæðst á Lindo-deildinni á St. Mary‘s spítalanum síðustu tvo áratugi. Spítalavistin er þó í dýrari kantinum og gæti kostað um tvær milljónir. Eðlileg fæðing kemur til með að kosta rúmlega eina milljón króna. Sé barnið tekið með keisaraskurði mun það kosta 1,4 milljónir króna. Hver sólarhringur eftir það kostar um 237 þúsund krónur. Verðandi mæður sem kjósa að fæða börn sín í þessari tilteknu deild fá lúxusmeðferð frá starfsfólki spítalans og bestu læknisþjónustu sem völ er á. Þá eru kokkar á vakt allan sólarhringinn, finni mæðurnar fyrir hungri. Að fæðingu lokinni er kveikt á kertum, boðið upp á fjögurra rétta máltíð og gefinn er kostur á að skála í kampavíni. Hvað mun barnið heita? Veðbankar víða um heim loga. Hafa fjölmargir freistað gæfunnar og veðjað á ýmis nöfn. Hjónin vita ekki kyn barnsins en telja flestir að nafnið verði heldur „ævintýralegra“ en áður. Nafnið Alice trónir á toppinum, komi lítil prinsessa í heiminn, ásamt nöfnunum Elizabeth, Charlotte og Victoriu. Komi drengur í heiminn veðja flestir á að hann fái nafnið Arthur, James eða Filippus. Þá hafa margir velt fyrir sér hvort fæðingin verði náttúruleg líkt og í ágúst 2013 þegar Kate átti frumburð sinn, George. Fjölmiðlar ytra segja að náttúruleg fæðing sé fyrirhuguð en hefur það þó ekki verið staðfest af konungsfjölskyldunni. Liggur það þó ljóst fyrir að bestu læknar heims muni taka á móti barninu, þar á meðal Guy Thorpe-Beeston, sem tók á móti litla George.Ættingjar fá fyrst fréttirnar – svo almenningur Elísabet drottning og aðrir ættingjar hjónanna fá fyrst fréttir af erfingjanum, áður en almenningur fær stórfréttirnar. Fjölmiðlafulltrúar konungsfjölskyldunnar munu svo senda út tilkynningu um kyn, þyngd og hvenær barnið fæddist. Skömmu síðar mun fjölskyldan birta fréttirnar á samskiptamiðlum; Instagram og Twitter.Hennar allra hörðustu aðdáendur.
Mest lesið Gerðu vopnin upptæk og sviptu hann leyfinu Innlent Dóttirin hafi viljað „fara“ fyrst Innlent Trump sagður beita sér í ESB-umræðunni hér á landi Innlent Ráðleggur Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Innlent Skólastjórinn umdeildi snýr ekki aftur Innlent Fundar með lækni frá Úkraínu sem þjónar til borðs á Íslandi Innlent Rannsaka kynferðisbrot á Akureyri Innlent Telja eldinn hafa kviknað út frá hleðslutæki Innlent Óljóst hvað verður um Kjartan og Mörtu Innlent Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Innlent Fleiri fréttir Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Gefa ekki eftir fyrr en „óvinurinn hefur verið gersigraður“ Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Íranir enn vígreifir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Sjá meira