Jolie lét fjarlægja eggjastokka og eggjaleiðara Samúel Karl Ólason skrifar 24. mars 2015 10:12 Angelina Jolie. Vísir/EPA/GETTY
Leikkonan Angelina Jolie hefur látið fjarlægja eggjastokka sína og eggjaleiðara. Fyrir tveimur árum lét hún fjarlæga bæði brjóst sín. Rannsókn leiddi í ljós að hún var í áhættuflokki fyrir krabbameini í brjóstum og eggjastokkum og hún missti móður sína, ömmu og frænku úr krabbameini. Þetta kemur fram í grein sem hún skrifaði í New York Times í dag. Jolie segir frá því að hún hafi lengi ætlað sér að láta fjarlægja eggjastokkana, en þrátt fyrir að sú aðgerð sé í raun einfaldari en að láta fjarlægja brjóst, séu afleiðingar hennar afdrifaríkari. Þrátt fyrir að vera einungis 39 ára gömul, er hún nú komin á breytingaskeiðið eftir aðgerðina. Fyrir tveimur vikum fékk hún símtal frá lækni sínum, sem sagði henni að ný rannsókn hefði leitt í ljós að hugsanlega væri hún komið með krabbamein á byrjunarstigum. „Ég fór í gegnum það sem ég ímynda mér að þúsundir kvenna hafi gert. Ég skipaði mér að halda ró, að vera sterk og sagði mér að ég hefði enga ástæðu til að ætla að ég myndi ekki sjá börnin mín vaxa úr grasi og kynnast barnabörnum mínum.“ Hún fór til sama læknis og annaðist móðir hennar og í ljós kom að hún var ekki með krabbamein. Þrátt fyrir það ákvað Jolie að láta gangast undir aðgerð og lét fjarlægja eggjastokka sína og eggjaleiðara. „Það er ómögulegt að fjarlægja alla áhættu og staðreyndin er sú að ég er líkleg til að fá krabbamein. Ég mun leita allra leiða til að styrkja ónæmiskerfi mitt. Mér líður enn eins og konu og er staðföst með þær ákvarðanir sem ég tek fyrir mig og fjölskyldu mína. Ég veit að börnin mín munu aldrei segja: Mamma dó úr krabbameini í eggjastokkum.“
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira