Í síðasta þætti af Hjálparhönd kynntumst við feðginunum Sigga og Láru sem hafa nýlokið þjálfun hjá Björgunarsveit Hafnarfjarðar. Þau deila með okkur reynslu sinni af starfinu og Siggi svarar því hvernig tilfinning það sé að senda barnið sitt út í óvissuna þegar mikið liggur við.
Í sjónvarpsþáttunum Hjálparhönd kynnumst við einstaklingum sem gefa tíma sinn til hjálpar öðrum og styrkja með því stoðir samfélagsins. Þættirnir eru sýndir á þriðjudagskvöldum klukkan 19:50 á Stöð 2.
Hér fyrir neðan má sjá fyrsta þátt Hjálparhandar í heild sinni þar sem talað var við Magdalenu Sigurðardóttur, sjálfboðaliða hjá Samhjálp. Sjálf á hún erfiða sögu að baki en hefur með aðstoð samtakanna komist yfir erfiðasta hjallann. Í þættinum rekur hún sögu sína um baráttuna við fíknina sem tók af henni völdin um tíma og nýtt upphaf eftir að meðferð lauk.