Þrítug íslensk kona handtekin: 13 kíló af heróíni og milljón pund gerð upptæk Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 8. ágúst 2015 00:31 Lögreglan í Liverpool lagði halda á milljón pund í reiðufé eða jafnvirði 208 milljóna íslenskra króna. Mynd af vef Liverpool Echo
Þrítug íslensk kona var handtekin í heimahúsi í Liverpool ásamt þremur karlmönnum þann 7. júlí síðastliðinn í aðgerðum lögreglunnar þar í borg. Við þrjár húsleitir lögreglu fundust rúmlega 13 kíló af heróíni sem lögregla telur að hafi verið ætlað til sölu. Sömuleiðis var á vettvangi ein milljón punda í reiðufé sem svarar til 208 milljóna íslenskra króna.DV greindi fyrst frá málinu í kvöld og vísar í umfjöllun Liverpool Echo og upplýsinga á vef lögreglunnar á Merseyside. Konan er nafngreind í miðlum ytra sem og á vefsíðu lögreglunnar en hún mun heita Kolbrún Ómarsdóttir. Mennirnir þrír sem voru einnig handteknir eru á aldrinum 23-36 ára. Þeir heita Benjamin Marsden, Darren Marsden og John Joseph Courtney.Úr upplýsingum á vef lögreglunnar í Liverpool má lesa að Darren og Benjamin Marsden hafi auk Kolbrúnar verið búsett á Liddell Avenue í Melling, litlu þorpi í útjaðri Liverpool.Paul Newhall var leitað af lögreglu í júlí. Enn er auglýst eftir honum á vef lögreglunnar í Liverpool.Leita fimmta aðila Fyrrnefnd fjögur komu fyrir dóm daginn eftir handtökuna og voru ákærð fyrir vörslu fíkniefnanna í þeim tilgangi að selja þau og einnig fyrir ætlaðan peningaþvott. Við sama tilefni auglýsti lögreglan í Liverpool eftir Paul Newhall, 38 ára karlmanni, sem sagður var hafa mikilvægar upplýsingar í tengslum við málið. Ekki liggur fyrir hvort leit lögreglu að Newhall hafi borið árangur. Rannsóknarlögreglumaðurinn Tony O’Brien sagði við fjölmiðla í júlí: „Þetta er umtalsvert magn fjár og fíkniefna sem við höfum lagt hald á, sem ekki er lengur í umferð og ratar þar af leiðandi ekki í vasa glæpamanna og valda skaða í samfélagi okkar.“
Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Fleiri fréttir Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Sjá meira