Bæjarfulltrúi: Reykingabann verði að veruleika innan skamms Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 14. maí 2014 15:24 Ómar segist sannfærður um að reykingabann verði að veruleika einn daginn. Ekki bara í Kópavogi heldur alls staðar.
Reykingar verða ekki bannaðar á opnum svæðum í Kópavogi. Tillaga um að ákvæði þess efnis yrði í nýrri lögreglusamþykkt bæjarins var ekki samþykkt. Ómar Stefánsson bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins í Kópavogi stóð á bak við tillöguna. Hann lagði til að bannað yrði að reykja á opnum svæðum, göngustígum og við opinberar byggingar sem tilheyra Kópavogi. Hann segir fordæmi fyrir banni sem þessu að finna í bæjum og borgum víðsvegar í heiminum. „Í New York er bannað að reykja í görðum og á göngustígum. Í Gautaborg er síðan til dæmis bannað að reykja í biðskýlum,“ segir Ómar í samtali við Vísi. Ómar segist algjörlega sannfærður um að það sé aðeins tímaspursmál hvenær reykingarbann verði að veruleika í Kópavogi. „Og ekki bara þar heldur út um allt.“ Aðspurður hvenær hann haldi að slíkt bann verði komið á svarar hann því til að hann sé 47 ára og hann muni lifa það. Vissulega hafi verið langt gengið með því að leggja þetta til. En það hafi lengi verið þannig að þegar fyrstu skrefin eru tekin að fólki finnist langt gengið. „Ég var ekkert að fatta upp á þessu og svona bann hefur gengið upp víðsvegar úti í heimi.“Reykingabann gangi ekki of langt gegn reykingafólki Honum finnst þó að með slíku banni sé ekki langt gengið gegn reykingarfólki. Þó reykingafólk sé almennt mun tillitsamara en það var fyrir nokkrum árum þá vanti enn upp á. Hann nefnir til dæmis Smáralindina í því samhengi en þar standi fólk við innganginn og reyki þannig að það trufli aðra. En allir eigi rétt á því að anda að sér hreinu lofti. „Þegar ég byrjaði að vinna í bæjarráði var reykt inní fundarherberginu. Það eru bara svona 12 til 15 ár síðan,“ segir Ómar. Því hafi nú talsvert breyst á þeim tíma. Ómar kveðst sjálfur aldrei hafa reykt. „Ég er viðurkenndur „fanatíker“,“ segir hann.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ Innlent Fleiri fréttir Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Sjá meira