Innlent

Ellefu prósent slepptu heimsókn til tannlæknis vegna kostnaðar

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Mikill munur var á milli tekjuhópa á Íslandi.
Mikill munur var á milli tekjuhópa á Íslandi. VÍSIR/HARI
Rúm ellefu prósent Íslendinga slepptu heimsókn til tannlæknis á síðasta ári sökum kostnaðar jafnvel þótt þeir þyrftu á slíkri þjónustu að halda. Hlutfallið var 5,8 prósent árið 2008 en hækkaði milli áranna 208 til 2011. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Mikill munur var á milli tekjuhópa á Íslandi. 17,7 prósent í tekjulægsta fimmtungi þjóðarinnar höfðu sleppt tannlæknisheimsókn sökum kostnaðar en 4,8 prósent í þeim tekjuhæsta.

Nýjustu tölur í alþjóðlegum samanburði eru frá árinu 2012 og var Íslands þá í fjórða sæti Evrópuþjóða eftir því hvernig þessari spurningu var svarað.

Aðeins Lettland, Portúgal og Rúmenía voru með hærra hlutfall en Ísland.

Árið 2012 slepptu tæp 3,7 prósent Íslendinga örum læknisheimsóknum sökum kostnaðar. Íslandv ar með sjötta hæsta hlutfallið meðal þjóða Evrópu. Lettland, Rúmenía og Grikkland voru þau lönd þar sem fólk sleppti helst læknisheimsókn sökum kostnaðar.

77 prósent Íslendinga töldu sig búa við góða heilsu árið 2012 og voru Íslendingar í sjötta sæti Evrópuþjóða við mat á eigin heilsufari. Írar, Svisslendingar og Svíar mátu heilsufar sigg best. Fleiri karlar telja heilsufar sitt betra en konur eða 79,5 prósent á móti 74,1 prósent. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×