Saka Snowden um ofsóknarbrjálæði og öfgaskoðanir Jóhannes Stefánsson skrifar 20. janúar 2014 23:40 New Republic sakar Snowden og aðra uppljóstrara um að vera óheiðarlegir.
Uppljóstrarinn Edward Snowden og aðrir uppljóstrarar eru sakaðir um ranghugmyndir og öfgaskoðanir í nýrri og ítarlegri fréttaskýringu The New Republic. Þar segir meðal annars að búið sé að gera mun meira úr aðgerðum bandarísku Þjóðaröryggisstofnunarinnar (NSA) en tilefni er til. Snowden er af mörgum álitinn frelsishetja fyrir að hafa lekið trúnaðarupplýsingum NSA til fjölmiðla á seinasta ári. Margir fjölmiðlar segja Snowden vera pílagrím sem lagði allt í sölurnar til að koma illa fengnum upplýsingum NSA í hendur almennings. Upplýsingar og frekari fyrirgrennslan fjölmiðla í kjölfar lekans hafa leitt í ljós víðtækar persónunjósnir ýmissa vestrænna ríkja á eigin þegnum og þegnum annarra ríkja. New Republic, sem er vinsæll félagshygginn fjölmiðill, segir málið þó ekki svo einfalt. Í fréttaskýringu New Republic er ýjað að því að Snowden og aðrir uppljóstrarar starfi einfaldlega í þágu eigin pólitískra sjónarmiða, en ekki af fórnfýsi í garð almennings.Uppljóstrararnir höfðu annarlegar hvatir Snowden er sagður „ofsóknarbrjálaður frjálshyggjumaður" og með lekanum hafi honum verið efst í huga að „koma höggi á frjálslynt nútímasamfélag," enda fyrirlíti hann það. Þá er vísað til ummæla á spjallsíðu sem eru talin vera eftir Snowden þar sem hann lýsir yfir ánægju sinni í garð hinnar umdeildu annarar greinar bandarísku stjórnarskrárinnar sem er ætlað að tryggja bandarískum ríkisborgurum rétt til að bera vopn. Þá er vísað til ummæla sem sýna Snowden lýsa óbeit sinni á bandarísku velferðarkerfi, þar sem hann segir meðal annars líkt og „gamalt fólk sé gert úr gleri." Trúverðugleiki Snowden er að auki dreginn í efa með tengslum hans við ýmis fyrirmenni í bandarískum stjórnmálum. New Republic nefnir sem dæmi að Snowden hafi aðhyllst ýmis stefnumál repúblikanans Ron Paul, eins og til að mynda hugmyndir hins síðarnefnda á að koma á gullfót í Bandaríkjunum. Á sama tíma mun Snowden hafa haft mikla óbeit á efnahagsstefnu Barack Obama, núverandi bandaríkjaforseta.Ekki tilefni til að vantreysta lýðræðiskjörnum ríkisstjórnum Þá koma einnig fram upplýsingar sem ætlað er að sýna fram á að stjórnendur Wikileaks hafi ekki starfað af heilindum. Til að mynda er sagt frá því hvernig Wikileaks ætluðu einn daginn að ljóstra upp gögnum frá rússneskum yfirvöldum, en þann næsta hafi Rússar farið fremstir í flokki í að verja uppljóstranir Wikileaks. Meðal annarra er Kristinn Hrafnsson, talsmaður Wikileaks nefndur á nafn í því samhengi. Fréttaskýringin segir fjölmiðla einnig hafa gert meira úr alvarleika njósna NSA en tilefni var til. Að endingu kemur fram að ekki sé tilefni til að vantreysta lýðræðiskjörnum ríkisstjórnum með þeim hætti sem Snowden og aðrir uppljóstrarar gera. Þó að eftirlit sé ekki aðlaðandi hluti af lýðræðissamfélögum sé það þó ekki andstætt þeim, en það séu uppljóstrararnir „ekki færir um að átta sig á."
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Sjá meira