Bíó og sjónvarp

Væntanlegar kvikmyndir árið 2015

Freyr Bjarnason skrifar
Margar stórmyndir verða sýndar árið 2015. Líklega ríkir mest eftirvænting eftir Star Wars: The Force Awakens í leikstjórn J.J. Abrams. Á meðal annarra athyglisverðra mynda eru Taken 3 í leikstjórn Oliviers Megaton, Mad Max: Fury Road í leikstjórn George Miller, Mission: Impossible 5 í leikstjórn Christophers McQuarrie og Jurassic World sem Colin Trevorrow leikstýrir.

Sjöunda Fast and the Furious-myndin verður sömuleiðis frumsýnd á næsta ári í leikstjórn James Wan. Álíka miklum látum má búast við í framhaldsmyndinni London Has Fallen í leikstjórn Babak Najafi.

1   Star Wars The Force Awakens

Leikstjóri J. J. Abrams.

AðalhlutverkHarrison Ford, Mark Hamill, Carrie Fisher og Peter Mayhew.

Sjöunda myndin í hinni ógurlega vinsælu Star Wars-seríu gerist um þrjátíu árum eftir atburðina í Return of the Jedi.

Framleiðandi Walt Disney Studios Motion Pictures.

Frumsýnd í N-Ameríku 18. desember.

2  The Martian

Leikstjóri Ridley Scott.

Aðalhlutverk Matt Damon, Jessica Chastain og Kate Mara.

Geimfarinn hjá NASA, Mark Watney (Damon), verður strandaglópur á rauðu plánetunni þegar áhöfnin í Ares 3-leiðangrinum neyðist til að yfirgefa lendingarstað sinn. Hann verður að lifa af þangað til Ares 4-leiðangurinn snýr aftur til Mars fjórum árum síðar.

Framleiðandi Twentieth Century Fox Film.

Frumsýnd í N-Ameríku 25. nóvember.

3  Terminator Genisys

Leikstjóri Alan Taylor.

Aðalhlutverk Arnold Schwarzenegger, Emilia Clarke, Jason Clarke og Jai Courtney.

Gerist árið 2029. Byltingarleiðtoginn John Connor (Jason Clarke) heldur áfram í stríði sínu gegn vélunum. Connor sendir Kyle Reese (Courtney) aftur í tímann til að bjarga lífi móður sinnar og tryggja eigin tilveru.

Framleiðandi Paramount Pictures.

Frumsýnd í N-Ameríku 1. júlí.

4  Taken 3

Leikstjóri Olivier Megaton.

Aðalhlutverk: Liam Neeson, Maggie Grace, Famke Janssen og Forest Whitaker.

Fyrrverandi CIA-maðurinn Bryan Mills (Neeson) er sakaður um að hafa myrt fyrrverandi eiginkonu sína Lenore (Janssen). Borinn röngum sökum, reynir að hann að nota hæfileika sína til að finna morðingjana og vernda dóttur sína.

Framleiðandi 20th Century Fox.

Frumsýnd í N-Ameríku 9. janúar.

5  Mad Max: Fury Road

Leikstjóri George Miller.

Aðalhlutverk: Tom Hardy, Charlize Theron, Nicholas Hoult og Hugh Keays-Byrne.

Myndin gerist eftir ragnarök í eyðimörk þar sem mannkynið er orðið brjálað og berst hatrammlega innbyrðis um lífsins nauðsynjar. Max (Hardy) hittir Furiosu (Theron), konu sem á leið yfir eyðimörkina í leit að æskuslóðum sínum.

Framleiðandi Warner Bros.

Frumsýnd í N-Ameríku 15. maí.

6  Inferno

Leikstjóri Ron Howard.

Aðalhlutverk Tom Hanks og Felicity Jones.

Dulmálsfræðingurinn frá Harvard Robert Langdon (Hanks) vaknar upp á sjúkrahúsi í Flórens og man ekkert eftir síðustu dögum og ekki heldur hvernig hann komst til Ítalíu. Fljótlega lendir hann á flótta undan dularfullum morðingjum. Með honum í för er læknirinn Sienna Brooks (Jones). Þau reyna á sama tíma að leysa ráðgátu rithöfundarins Dante Alighieri úr bók hans The Divine Comedy.

Framleiðandi Columbia Pictures. Frumsýnd í N-Ameríku 18. desember.

7  Pixels

Leikstjóri Chris Columbus.

Aðalhlutverk Kevin James, Josh Gad og Peter Dinklage.

Þegar geimverur mistúlka sígilda tölvuleiki frá 9. áratugnum og telja þá stríðsyfirlýsingu gegn sér, ákveða þær að ráðast á New York-borg. Hópur tölvunörda aðstoðar stjórnvöld við að glíma við geimverurnar.

Framleiðandi Columbia Pictures. Frumsýnd í N-Ameríku 24. júlí.

8  In the Heart of the Sea

Leikstjóri Ron Howard. Aðalhlutverk: Chris Hemsworth, Cillian Murphy og Tom Hollander.

Byggð á atburðunum árið 1820 þegar hvalveiðiskipið Essex lenti í hremmingum vegna risastórs hvals, sem varð til þess að skipið komst ekki í land í 90 daga. Atburðirnir veittu skáldinu Herman Melville innblástur við gerð bókar hans Moby Dick sem kom út 1851.

Framleiðandi Warner Bros.

Frumsýnd í N-Ameríku 11. mars.

9  Mission: Impossible 5

Leikstjóri Christopher McQuarrie.

Aðalhlutverk Tom Cruise, Jeremy Renner og Simon Pegg.

Fimmta myndin í Mission: Impossible-seríunni með Tom Cruise enn á ný í hlutverki njósnarans Ethans Hunt.

Framleiðandi Paramount Pictures. Frumsýnd í N-Ameríku 25. desember.

10  Jurassic World

Leikstjóri Colin Trevorrow.

Aðalhlutverk Chris Pratt, Bryce Dallas Howard og Vincent D'Onofrio.

22 árum eftir atburðina í Jurassic Park er kominn risaeðluskemmtigarður á eyjuna Isla Nublar sem nefnist Jurassic World. Vísindamenn garðsins búa til erfðabreyttar risaeðlur til að fjölga gestum. Sú tilraun á eftir að mistakast herfilega.

Framleiðandi Universal Pictures. Frumsýnd í N-Ameríku 12. júní.

11  Furious 7

Leikstjóri James Wan.

Aðalhlutverk Vin Diesel, Jason Statham, Paul Walker, Dwayne Johnson og Michelle Rodriguez.

Deckard Shaw (Statham) leitar hefnda gegn Dominic Toretto (Diesel) og fylgdarliði hans vegna dauða bróður hans.

FramleiðandiUniversal Pictures.

Frumsýnd í N-Ameríku 3. apríl.

12  London Has Fallen

Leikstjóri Babak Najafi. Aðalhlutverk Gerard Butler, Aaron Eckhart og Morgan Freeman.

Í jarðarför forsætisráðherra Bretlands kemst leyniþjónustumaðurinn Mike Banning (Butler) að því að drepa eigi alla heimsleiðtogana sem sækja jarðarförina.

Framleiðandi Focus Features.

Frumsýnd í N-Ameríku 2. október.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×