Rás mun snerta gesti Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 28. ágúst 2014 12:30 Verk eftir Þóru Sigurðardóttur.
Specimina Domestica eftir Ívar Brynjólfsson. „Listasalirnir eru forkunnarfallegir og ég get lofað því að sýningin Rás mun snerta gesti djúpt,“ segir Helga Þórsdóttir menningarfræðingur. Hún er sýningarstjóri haustsýningar Hafnarborgar í Hafnarfirði sem opnuð verður annað kvöld. Þar er teflt saman verkum listamanna sem þekktir eru fyrir að gera huglægri reynslu efnisleg skil á áhrifaríkan hátt. Þeir eru Daníel Magnússon, Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir, Ívar Brynjólfsson, Ívar Valgarðsson, Sólveig Aðalsteinsdóttir og Þóra Sigurðardóttir.Verk eftir Daníel Magnússon.Listafólkið á allt að baki fjölda sýninga hér á landi og erlendis að sögn Helgu sem átti hugmyndina að Rás. Sú hugmynd var valin úr innsendum tillögum að haustsýningu 2014. „Markmiðið með stefnumóti þessa fólks er ekki síst að varpa ljósi á samtímalistsköpun sem farveg fyrir nýjar hugsanir og hugmyndir,“ segir Helga. Rás verður opnuð klukkan 20 annað kvöld. Á sunnudaginn, 31. ágúst, verður listamannsspjall í Hafnarborg klukkan 15 þar sem einn af sýnendunum, Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir myndlistarmaður, hefur orðið. „Guðrún er búsett í Finnlandi,“ upplýsir Helga. „Því er sérstakur fengur að fá hana hingað með sína list og spjall.“
Menning Mest lesið Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Lífið Hvað veistu um… One Direction? Lífið Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit Lífið Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Lífið Hvað er í gangi á Svalbarða? Lífið Sonur Mari og Njarðar fæddur Lífið Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Lífið Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Lífið Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Lífið „Þetta er ólýsanleg tilfinning“ Tónlist Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira