Íbúarnir ætla að standa vörð um 100 ára silfurreyni Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 3. júní 2014 11:00 Ylfa Dögg Árnadóttir og Eiríkur Kristinn Júlíusson. Ylfa Dögg hefur hafið undirskriftasöfnun til að mótmæla framkvæmdum vegna fyrirhugaðrar hótelbyggingar milli Laugavegs og Grettisgötu. Húsið fyrir aftan þau verður flutt innan lóðarinnar. fréttablaðið/vilhelm
Skipulagsstjóri, garðyrkjustjóri og fulltrúi Lantan ehf., sem hyggst reisa hótel milli Laugavegs og Grettisgötu, funduðu í gær vegna mótmæla íbúa í grenndinni. Íbúarnir ætla að standa vörð um rúmlega hundrað ára gamlan silfurreyni á Grettisgötu 17 sem á að fella ef áætlanir um hótelbyggingu ná fram að ganga. Athugasemdir mótmælenda bárust í gríð og erg til fulltrúa borgaryfirvalda í gær og var þá ákveðið að fara yfir stöðu mála. „Þetta er flott tré og getur sjálfsagt lifað í önnur 100 ár. Ég myndi fagna því ef leitað yrði lausna svo tréð fái að vera,“ segir Þórólfur Jónsson garðyrkjustjóri. Hann segir að reglur um friðun trjáa vegna aldurs og hæðar eigi ekki við þegar búið sé að samþykkja byggingar á svæði sem þau standa á. Hann getur þess að enn hafi ekki verið sótt um byggingarleyfi. Íbúarnir eru ekki bara ósáttir við að missa silfurreyninn heldur eru þeir einnig mótfallnir hótelbyggingunni og lagningu stígs frá Grettisgötu að Laugavegi. Þeir segja að mikið ónæði komi til með að fylgja ferðum hótelgesta þar. Auglýsing um tillögu að breyttu deiliskipulagi var birt í fjölmiðlum á Þorláksmessu til þess að hægt væri að gera athugasemdir. „Hver rekur augun í slíka auglýsingu á þeim degi?“ spyr Hallfríður Pálsdóttir, sem býr að Grettisgötu 13 eða við hliðina á fyrirhuguðum stíg. Íbúarnir hafa kvartað undan því að engin grenndarkynning hafi farið fram. Björn Axelsson skipulagsstjóri segir grenndarkynningu fara fram þegar um minniháttar breytingar er að ræða. „Það er til dæmis gert þegar um breytingar á kvistum er að ræða eða þegar ekki er til deiliskipulag. Þegar um deiliskipulag er að ræða er ekki komið með bréf inn um lúguna heldur er birt auglýsing.“ Skipulagsstjóri segir ástæðu til að ræða möguleikann á breyttu ferli kynninga vegna breytinga á skipulagi í þéttri byggð. Samkvæmt tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir lóðirnar við Laugaveg 34A og 36 og Grettisgötu 17 er gert ráð fyrir að bakhúsið við Laugaveg 34A verði stækkað til suðurs að lóðarmörkum Grettisgötu 17 og byggt þar ofan á stakstætt tveggja hæða hús með risi og kvistum á þaki. Við Laugaveg 36 er hugmyndin að byggja tveggja hæða staka byggingu með risi og kvistum. Minjastofnun hefur fallist á að hús á baklóð Laugavegar 36 verði fært yfir á lóð við Grettisgötu 17. Minjastofnun hefur einnig fallist á að húsið á Grettisgötu 17 verði flutt innan lóðarinnar og því verði fundinn staður framar við götu. „Þetta skipulag sem nú liggur fyrir er framför frá því sem búið var að leyfa 2003. Það er sérstaklega ánægjulegt að húsið á baklóð Laugavegs, sem var byggt 1896, verði áfram hluti af hinni upphaflegu timburhúsabyggð,“ segir Pétur Ármannsson, forstöðumaður Minjastofnunar. Hann segir að ekki hafi verið tekin afstaða til silfurreynisins við Grettisgötu 17. „Auðvitað er trjágróður hluti af grónu umhverfi. Í þessu tilfelli litum við kannski frekar á að þetta væri viðfangsefni borgarinnar. Verndun trjágróðurs er ekki hluti af lögum um menningarminjar sem við störfum eftir.“
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir Hvað segja veðbankarnir? Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Sjá meira