Innlent

Geðlæknaþjónusta fyrir börn

Júlía Margrét Einarsdóttir skrifar
Kristján Þór Júlíusson.
Kristján Þór Júlíusson. Vísir/Pjetur
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir samkomulag í burðarliðnum um geðheilbrigðisþjónustu barna og unglinga á Norður- og Austurlandi.

Ráðherra segist hafa beint þeim tilmælum til forstjóra Landspítalans og forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri, að leita allra þeirra leiða sem færar eru til að greiða úr málinu.

Þetta kom fram í svari ráðherra við fyrirspurn Brynhildar Pétursdóttur, þingmanns Bjartrar framtíðar, á Alþingi. Ekki liggur fyrir á þessari stundu í hverju samkomulagið felst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×