Innlent

Hringja í alla húseigendur á Raufarhöfn

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Fólki fækkar hraðar á Raufarhöfn en á flestum stöðum.
Fólki fækkar hraðar á Raufarhöfn en á flestum stöðum. Fréttablaðið/Pjetur
Norðurþing, Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga, Byggðastofnun og Háskólinn á Akureyri hafa snúið bökum saman og unnið að því að leita lausna á viðvarandi íbúafækkun á Raufarhöfn. Þetta kom fram í bæjarráði Norðurþings.

Þar sem aðgengi að íbúðarhúsnæði sé ein meginforsenda þess að hægt sé að taka á móti fólki eigi að kanna stöðu húsnæðismála á staðnum.

„Á næstu dögum verður hringt í skráða eigendur íbúðarhúsa á staðnum í þeim tilgangi að afla upplýsinga um ástand og nýtingu húsnæðisins,“ segir í fundargerð bæjarráðs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×