Mynda mistökin í fimleikum Freyr Bjarnason skrifar 10. maí 2014 07:00 Axel Ólafur Þórhannesson notast við nýjustu myndavélatækni við þjálfun sína. Fréttablaðið/Vilhelm „
Fimleikar eru ofsalega tæknilegir og smáatriðin skipta mjög miklu máli,“ segir Axel Ólafur Þórhannesson, fimleikaþjálfari hjá Gerplu. Axel Ólafur, rétt eins og margir aðrir fimleikaþjálfarar, notast við nýjustu myndavélatækni í starfi sínu. Um er að ræða forrit fyrir spjaldtölvur þar sem þjálfarar og iðkendur geta séð hvað þarf að laga eftir hverja æfingu. „Það tekur oft mörg ár fyrir þjálfara að ná þeirri tækni að geta séð öll þessi smáatriði.“ Aðspurður segir Axel Ólafur að tæknin hafi nýst mjög vel síðan Gerpla tók hana fyrst í notkun fyrir um þremur árum. „Þetta setur nýjan standard í kennslunni og hjálpar okkur gríðarlega að bæta okkur. Það er gott fyrir strákana og stelpurnar að sjá nákvæmlega hvað þau eru að gera vitlaust,“ segir hann en einnig er hægt að merkja inn í forritin hvernig þjálfarnir vilja að iðkendurnir standi. „Við höfum ekki mælt framfarirnar sérstaklega en ég vil meina að þetta hjálpi krökkunum gríðarlega við að átta sig á því hvað þarf að gera. Munnleg fyrirmæli eru heldur ekki jafn sterk og þessi sjónrænu.“ Forritin, sem heita Coach's Eye og Ubersense, voru upphaflega hönnuð fyrir kylfinga til að skoða hvernig sveifla þeirra er að þróast og í framhaldinu var farið að nota þau í öðrum íþróttum. Þjálfarar fimleikalandsliða Íslands hafa notast við þessa nýjustu tækni með góðum árangri. Evrópumótið í áhaldafimleikum verður haldið í Sofíu í Búlgaríu eftir nokkrar vikur. Þar verður hún notuð við undirbúninginn og einnig fyrir Evrópumótið í hópfimleikum sem verður haldið hér á landi í haust í fyrsta sinn. Sjálfur notar Axel Ólafur forritin í fjórum áhöldum af þeim sex sem hann kennir. Um jólin hlaut hann viðurkenningu frá Ubersense fyrir að vera á meðal þeirra tíu prósenta í heiminum sem nota það forrit mest. „Það var mjög gaman. Það segir manni líka hvað maður er mikið nörd.“
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Erlent Vill breyta umdeildum gatnamótum Innlent „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Innlent Fleiri fréttir Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Sjá meira