Ótímabært að meta öryggi í sjúkraflugi 12. maí 2014 07:15 Þyrlur Landhelgisgæslunnar annast nú fyrst og fremst sjúkraflug á sjó og þar sem sjúkrabílum verður ekki komið við á Suður- og Vesturlandi. Fréttablaðið/Pjetur
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra segir ótímabært að láta meta ávinning af því að Landhelgisgæslan taki við sjúkraflugi í landinu. Þetta kemur fram í svari innanríkisráðherra við fyrirspurn frá Silju Dögg Gunnarsdóttur, alþingismanni Framsóknarflokks. Í fyrirspurninni vísar Silja til ábendingar Ríkisendurskoðunar um gerð langtímaáætlunar um starfsemi Landhelgisgæslunnar. Í svari ráðherra segir að ljúka eigi við áætlunina í haust.Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra.Er í sjúkraflugi án þess að fá greitt Silja spurði hvort ráðherrann ætlaði að láta meta sérstaklega hvaða áhrif það hefði á þjónustu, nýtingu tækjabúnaðar og annan rekstur Landhelgisgæslunnar ef gæslan tæki við sjúkraflugi og kanna hvort sú breyting yki öryggi landsmanna. Innanríkisráðherra bendir á að sjúkraflug sé ekki á sínu forræði heldur heilbrigðisráðherra. Landhelgisgæslan megi þó samkvæmt lögum gera þjónustusamninga – þar með talið um almennt sjúkraflug og aðstoð við læknisþjónustu. „Landhelgisgæslan sinnir nú þegar umtalsverðum hluta sjúkraflugs án þess að á móti komi sérstakar greiðslur. Ákvörðun um breytingar eða sérstaka skoðun á öðru fyrirkomulagi sjúkraflutninga, þar með töldu sjúkraflugi, verður ekki tekin nema að höfðu samráði við ríkisstjórn og Alþingi. Því er ótímabært að láta meta þá þætti sérstaklega sem hér er spurt um,“ svaraði Hanna Birna Innanríkisráðherra vísaði síðan í þetta sama svar við næstu spurningu Silju um það hvort ráðherra ætlaði, í samræmi við athugasemdir Ríkisendurskoðunar, að láta athuga hvort hagkvæmara væri að sjúkraflug yrði í höndum einkaaðila eða á vegum Landhelgisgæslunnar.Silja Dögg Gunnarsdóttir, alþingismaður Framsóknarflokks í Suðurkjördæmi.Ríkisendurskoðun gagnrýnir ráðuneytin Flugfélagið Mýflug annast sjúkraflug með samningi við ríkið. Ríkisendurskoðun sagði í ágúst í fyrra að ekki lægju fyrir nægar upplýsingar til að meta hvort hagkvæmt væri að Landhelgisgæslan tæki sjúkraflugið að sér. Helstu rökin væru að auka öryggi í sjúkraflugi og tryggja betri nýtingu á mannskap Landhelgisgæslunnar. „Stofnunin hvetur innanríkisráðuneyti til að skoða mögulega aðkomu hennar að slíku flugi með formlegri og nákvæmari hætti en gert hefur verið,“ sagði Ríkisendurskoðun sem kvað misskilning vera uppi milli velferðarráðuneytis og innanríkisráðuneytis um málið: „Ríkisendurskoðun gagnrýnir að málið hafi ekki fengið formlega afgreiðslu milli og innan ráðuneytanna.“
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Fleiri fréttir Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Sjá meira