Innlent

Litlu fleiri í gegnum Hvalfjarðargöng

Brjánn Jónasson skrifar
Ekki hefur verið kannað hvar þeir búa sem fara um göngin síðan árið 2002.
Ekki hefur verið kannað hvar þeir búa sem fara um göngin síðan árið 2002. Fréttablaðið/Pjetur
Landsmenn fóru tæplega 1,9 milljónir ferða um Hvalfjarðargöng á síðasta ári, eða að meðaltali 5.171 ferð á hverjum degi. Þetta kemur fram í svari innanríkisráðherra við fyrirspurn Elsu Láru Arnardóttur, þingmanns Framsóknarflokksins, á Alþingi.

Umferð um göngin hefur lítið aukist á síðustu árum. Alls voru farnar 5.070 ferðir á dag árið 2011 og 5.007 árið 2012. Enn er því talsvert í að umferðin verði jafn mikil og árið 2007, þegar 5.579 bílar óku um göngin að meðaltali á degi hverjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×