Lífið

Tjáir sig ekki um bréfið frá Dylan Farrow

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Scarlett ætlar ekki að draga ályktanir.
Scarlett ætlar ekki að draga ályktanir. Vísir/Getty

„Mér finnst óábyrgt að nefna fullt af leikurum og henda þeim inn í aðstæður sem enginn gat hugsanlega tjáð sig um. Það finnst mér óábyrgt,“ segir leikkonan Scarlett Johansson um opinskátt bréf sem Dylan Farrow birti á bloggvef New York Times í byrjun febrúar. Í bréfinu sagði hún að faðir sinn, kvikmyndaleikstjórinn Woody Allen, hefði misnotað sig kynferðislega í æsku. Í bréfinu heimtaði hún svör frá samstarfsmönnum föður síns.



„Hvað ef þetta hefði verið barnið þitt? Cate Blanchett? Louis CK? Alec Baldwin? Hvað ef þetta hefði verið þú, Emma Stone? Eða þú, Scarlett Johansson? Þú þekktir mig þegar ég var lítil stúlka, Diane Keaton. Hefurðu gleymt mér?“ skrifaði hún meðal annars.



„Ég veit ekkert um þetta. Það væri fáránlegt af mér að draga ályktanir. Það er ekki eins og þetta sé einhver sem hefur verið sakfelldur fyrir eitthvað og hægt sé að segja að maður styðji ekki þennan lífsstíl,“ segir Scarlett í viðtali við Guardian.

Alec Baldwin hefur líka tjáð sig um bréfið og hafði þetta um málið að segja á Twitter-síðu sinni:



„Hvað í fjandanum er að ykkur? Að ykkur þyki við þurfa öll að tjá okkur um þessar fjölskyldudeilur?“



Þá talaði Cate Blanchett stuttlega um bréfið á kvikmyndahátíðinni í Santa Barbara í byrjun febrúar en Cate hlaut Óskarsverðlaun fyrir frammistöðu sína í Blue Jasmine, nýjustu mynd Woody Allen.

Woody og Mia ásamt börnum sínum Moshe, Dylan og Fletcher og Soon-Yi í New York árið 1986.Vísir/Getty

„Þetta hefur verið erfitt og sársaukafullt fyrir fjölskylduna og ég vona að þau finni einhverja lausn og frið,“ sagði Cate.



Woody sjálfur svaraði bréfi Dylan á bloggvef New York Times og kenndi móður hennar, leikkonunni Miu Farrow, um að hafa plantað þessum hugmyndum um kynferðislegt ofbeldi í huga dóttur sinnar.



„Auðvitað misnotaði ég ekki Dylan. Ég elskaði hana og ég vona að hún muni skilja einn daginn að búið er að svíkja hana um að eiga ástríkan föður og að hún hafi verið misnotuð af móður sem hefur meiri áhuga á sinni eigin reiði en velferð dóttur sinnar.“



Ástarsambandi Woody og Miu lauk árið 1992 eftir að hún fann nektarmyndir sem hann hafði tekið af Soon-Yi Previn, tvítugri kjördóttur Miu. Í kjölfarið viðurkenndi Allen að hann ætti í ástarsambandi við hana. Við tók erfið forræðisdeila þar sem Mia sakaði Woody um að hafa misnotað Dylan en dómari vísaði málinu frá vegna ónógra sannanna.


Tengdar fréttir

Opið bréf Dylan Farrow vekur heimsathygli

Virðingin sem Woody Allen nýtur í kvikmyndaiðnaðinum er lýsandi dæmi þess að samfélagið bregst ítrekað fórnarlömbum kynferðisofbeldis. Þetta er meðal þess sem kemur fram í opnu bréfi Dylan Farrow, dóttur Allens, sem birtist í The New York Times í gærkvöldi, en þar lýsir hún misnotkun af hálfu föður síns.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×