Vatnsberinn hótaði lögreglumönnum lífláti og sagðist ætla á mannaveiðar Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 8. maí 2014 16:59 Þór var dæmdur í sextán ára fangelsi árið 2000 fyrir manndráp.
Þór Ólíver Gunnlaugsson var í dag dæmdur í Hæstarétti Íslands í sex mánaða fangelsi fyrir að hafa hótað lögreglumönnum lífláti og fyrir að hafa haft fíkniefni í fórum sínum. Þór var dæmdur í sextán ára fangelsi árið 2000 fyrir manndráp. Þór Ólíver er gert að sök að hafa sagst ætla að koma heim til tveggja lögreglumanna og skjóta þá þegar lögregla handtók hann í júlí í fyrra. Þá fundust í fórum hans 2,03 grömm af fíkniefninu MDMA og 1,61 gramm af amfetamíni. Honum er gert að greiða samtals 642.495 krónur í áfrýjunarkostnað og málsvarnarlaun verjanda síns. Þór Ólíver neitaði að hafa hótað lögreglumönnunum en játaði fíkniefnabrot sitt.Sagðist ætla á mannaveiðar Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur segir að lögregla hafi fengið tilkynningu um ölvaðan mann sem væri til vandræða á eldsneytissölu Olís við Álfheima. Þegar Þór rankaði við sér var honum gefinn kostur á að ganga út úr versluninni en virti hann lögreglumennina ekki viðlits. „Hafi hann byrjað að ausa úr sér fúkyrðum og niðrandi ummælum í garð lögreglumanna og hann verið færður í handjárn til að tryggja öryggi hans sem og lögreglumanna. Er lögregla hafi ekið frá Olís á Suðurlandsbraut við Grensásveg hafi maðurinn sagst ætla að verða sér út um skotvopn og koma heim til lögreglumanna og skjóta þá. Hafi maðurinn einnig sagst ætla að fara á mannaveiðar. Hafi lögreglumenn stöðvað lögreglubifreiðina og spurt manninn hvað hann hafi verið að segja og hafi hann endurtekið orð sín og aftur sagst ætla að koma heim til lögreglumanna og skjóta þá,“ segir í dómi Héraðsdóms.Einn þyngsti dómur Íslandssögunnar Þór Óliver Gunnlaugsson, sem áður hét Þórhallur Ölver og oft er kallaður Vatnsberinn, fékk sextán ára fangelsisdóm árið 2000 fyrir að bana Agnari W. Agnarssyni. Árið 2004 fékk hann svo tveggja og hálfs árs fangelsisdóm fyrir skjalafals og að reyna að svíkja fé út úr dánarbúi Agnars. Þór hlaut viðurnefnið Vatnsberinn í tengslum við stórfelld svik á virðisaukaskatti í tengslum við vatnsverksmiðju í Hafnarfirði árið 1995. Þetta var einn þyngsti dómur Íslandssögunnar af þessum toga. Síðan hefur hann fengið fjölda styttri dóma. Hann strauk af Litla-Hrauni í júlí 2011 en var veitt reynslulausn árið eftir. Þá átti hann 2.075 daga eftir óafplánaða, sem eru tæp sex ár. Hann hefur nú hafið afplánun eftirstöðva þessara eldri dóma. Með ákvörðun Fangelsismálastofnunar ríkisins 16. júlí 2012 var ákærða gert að afplána eftirstöðvar refsingarinnar vegna rofs sama dag á því skilyrði reynslulausnarinnar að neyta hvorki áfengis né ávana- og fíkniefna á reynslutímanum.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ Innlent Fleiri fréttir Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun Sjá meira