Innlent

Ölvaður missti stjórn á bifreið þegar hann skipti um útvarpsstöð

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Hann sagði óhappið hafa orðið með þeim hætti að missti stjórn á bifreiðinni þegar hann skipti lag í útvarpinu.
Hann sagði óhappið hafa orðið með þeim hætti að missti stjórn á bifreiðinni þegar hann skipti lag í útvarpinu.
Ökumaður velti bifreið sinni á Garðskagavegi í gærmorgun, hann er grunaður um ölvun við akstur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Lögreglan handtók manninn á vettvangi og var hann fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar. Að því loknu var hann færður á lögreglustöð. Þar viðurkenndi hann að hafa ekið undir áhrifum áfengis og auk þess voru ökuréttindi hans fallin úr gildi.

Hann sagði óhappið hafa orðið með þeim hætti að missti stjórn á bifreiðinni þegar hann skipti lag í útvarpinu. Fjarlægja þurfti bifreiðina með dráttarbíl. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×