Innlent

Löggan spyrst fyrir um tvo karlmenn

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá Selfossi.
Frá Selfossi. Vísir/Stefán
Lögreglan á Selfossi leitar upplýsinga um tvo unga karlmenn sem eru grunaðir um innbrot í tvö heimahús á Selfossi aðfararnótt sunnudagsins síðasta. Annað húsið er í Laufhaga og hitt í Reyrhaga.

Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni var svalahurð spennt upp á öðrum staðnum en á hinum gluggi, sem er 21 sentímetri á breidd og farið inn um hann. Rótað var í skápum og skúffum og voru skartgripir úr gulli teknir en silfur látið vera. Þá var vínflöskum stolið úr báðum húsum.

Til tveggja ungra manna sást þessa nótt þegar þeir gengu austu Reyrhaga yfir Dælengi, en annar mannanna var með vínflösku sem hann kastaði frá sér. Vitað er að flaskan var úr öðru húsinu.

Lögreglan veit einnig til þess að tveimur ungum mönnum hafi verið vísað á dyr á veitingastaðnum Frón við Eyraveg, þessa sömu nótt. Lögreglan á Selfossi biður alla þá sem veitt geta upplýsingar um innbrotin og hverjir þessir ungu menn eru að hafa samband.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×