Best að vera móðir í Finnlandi Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 12. maí 2014 09:50
Það er best að vera móðir í Finnlandi en verst að vera móðir í Sómalíu. Þetta er niðurstaða könnunar sem gerð var í 178 löndum í ár og kynnt í nýrri skýrslu Barnaheilla – Save the children um stöðu mæðra í heiminum. Ísland er í fjórða sæti listans í ár og hér er barnadauði hvað minnstur í heiminum. Það er aðeins í Lúxemborg þar sem færri börn deyja fyrir fimm ára aldur en hér á landi. Ísland hefur verið í einu af 10 efstu sætum listans í átta skipti síðan skýrslan kom fyrst út árið 2000. Á Íslandi eru líkurnar á því að barn nái ekki fimm ára aldri einn á móti 435 en í Sierra Leone eru líkurnar einn á móti fimm. Í ár er sjónum sérstakklega beint að mæðrum sem búa við neyð. Til dæmis að mæðrum sem búa við afleiðingar vegna fellibylja á borð við Haiyan á Filippseyjumeða til mæðra sem búa í þróunarlöndum eða stríðshrjáðum löndum á borð við Lýðveldið Kongó og Sýrland. Niðurstöður skýrslunnar hjálpa til við að skilja og bregðast við þörfum þeirra. Af stríðshrjáðum löndum, sem yfirleitt eru afar neðarlega á listanum, stendur góður árangur í baráttunni við mæðra- og barnadauða í Afghanistan upp úr. „Tengslin á milli þróunarlanda eða landa þar sem átök geisa og hárri tíðni mæðra- og barnadauða gætu litið út fyrir að vera augljós, en á meðan tölur í sumum þessara landa eru mjög háar, sýna önnur að hægt er að bjarga lífum mæðra og barna, þrátt fyrir afleiðingar stríðs eða annarra hörmunga;” segir Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children á Íslandi. „Meira en helmingur allra tilfella mæðra- og barnadauða í heiminum á sér stað í þróunarlöndum eða þar sem átök eiga sér stað. Langflest tilfellin eiga sér stað vegna þess að innviðir samfélaganna hafa hrunið, skortur er á nauðsynlegum tækjum eða að þjálfað heilbrigðisstarfsfólk er ekki til staðar við fæðingu.“
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Innlent Fleiri fréttir Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Sjá meira