Beðið í ofvæni eftir því hvort lending á halastjörnunni takist 12. nóvember 2014 13:19 Halastjarnan 67P/Churyumov-Gerasimenko í Kópavogi. Ef vel er að gáð má sjá Perluna til samanburðar undir halastjörnunni. Mynd/Hermann Hafsteinsson/Stjörnufræðivefurinn/ESA
Áhugamenn um geimvísindi og stjörnufræði bíða nú með öndina í hálsinum en könnunarfarið Philae var í morgun sleppt frá gervitunglinu Rósetta og er ætlunin að lenda á halastjörnu. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt er reynt og ef vel gengur er von á miklum nýjum upplýsingum um eðli slíkra fyrirbæra, sem halastjörnur eru.Bein útsending verður frá lendingunni á Vísi. Sævar Helgi Bragason áhugamaður um stjörnufræði er einn fjölmargra sem fylgjast spenntir með. „Nú er komið að hápunktinum í þessum tíu ára leiðangri Rosetta til halastjörnunnar 67P/Churyumov-Gerasimenko og það er lending á halastjörnu, segir Sævar Helgi. Nú er könnunarfarið að falla frá Rosetta og að yfirborði halastjörnunar.Sævar Helgi Bragason, áhugamaður um stjörnufræði.„Sú ferð tekur um sjö klukkustundir og er í rauninni bara frjálst fall. Upp úr klukkan fjögur í dag skellur Philae á yfirborðinu og hlekkjar sig þar fast. Síðan byrjar farið vonandi að taka myndir af yfirborðinu og senda þær til baka.“ Sævar segir þó alls óvíst hvort þetta takist allt saman. Hann segir að það kæmi honum og fleiri á óvart ef þetta tekst. Geimfarið getur ekki stjórnað ferð sinni niður að yfirborðinu og því ekki víst á hverju það lendir. Það gæti því til dæmis oltið á hliðina. Ef farinu tekst heldur ekki að hlekkja sig við halastjörnuna mun það líklega skoppa af yfirborðinu og út í geim á ný. Sævar segir að ferðin öll sé þó ekki unnin fyrir gýg. Mikið magn upplýsinga hafi safnast saman á leiðinni og þá komi margt í ljós í sjálfri niðurferðinni. „Við fáum þá einhverjar upplýsingar en ekki þær mikilvægustu, sem eru til dæmis að taka sýni úr innviðum halastjörnunnar og svo framvegis.“ Það kemur því í ljós um klukkan fjögur síðdegis, hvort þessi tíu ára leiðangur mun takast eður ei.
Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Margaret Hamilton er látin Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Fangaði sólarupprás á Mars Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu Kona stungin til bana við matvöruverslun í Malmö Bandarískir hermenn í útgöngubanni eftir morð Fjögur börn meðal nítján látinna í árásum á afmælisdegi Pútíns Draga til baka handtökuskipun á hendur leiðtoga katalónskra aðskilnaðarsinna Sjá meira