Páll Viðar: Chuck er ekki byrjaður að æfa Tómas Þór Þórðarson skrifar 18. maí 2014 21:54 Chuck er mikilvægur fyrir Þór. Vísir/Sævar Geir „
Vonbrigði en það er engin uppgjöf í okkur. Við einbeitum okkur bara að næsta leik, það er það eina sem við getum gert. Við verðum bara að halda áfram og reyna að fylla upp í markið og skora mörk til að fá stig. Það er ekkert flóknara en það, við erum að berjast á botninum og það er staðreyndin sem við verðum að horfast í augu við.“ Þetta sagði Páll Viðar Gíslason, þjálfari Þórs, við Ólaf Hauk Tómasson, blaðamann Vísis á Þórsvellinum eftir 4-3 tapið gegn Stjörnunni í kvöld, aðspurður um hvernig hann liti á stöðu liðsins. Þór er í botnsæti Pepsi-deildarinnar, án stiga eftir fjórar umferðir en eins og gefur að skilja er liðið búið að tapa öllum fjórum leikjum sínum til þessa. „Við erum í erfiðleikum. Við fáum á okkur fjögur mörk á heimavelli sem segir okkur það að við erum í erfiðleikum með að halda búrinu okkar hreinu og við þurfum að skora ansi mörg mörk til að fá eitthvað út úr þessu," sagði Páll Viðar. Jóhann Þórhallsson, framherjinn sem lagði skóna á hilluna fyrir mót, var með Þór í leiknum en hann lagði upp eitt mark. Hvers vegna var hann dreginn á flot? „Fyrst og fremst vegna langrar fráveru okkar aðal framherja, Chuck, hann hefur ekki verið með og við erum að reyna að berjast við að leysa þetta og þeir sem hafa gert það hafa gert það ágætlega en við erum að berjast við að koma boltanum í netið og Jói á nokkur mörk í íslenskum fótbolta og var til í að koma til að hjálpa okkur og ég er þakklátur fyrir það,“ sagði Páll Viðar en Jóhann hefur skoraði 100 mörk í 254 leikjum í efstu tveimur deildum Íslandsmótsins. Ljóst er að Þórsurum sárvantar að nota framherjann öfluga, Chukwudi Chijindu, í leikjum liðsins en hann hefur ekki enn komið við sögu vegna meiðsla. Og af orðum Páls Viðars að dæma í kvöld er enn eitthvað í að hann spili. „Chuck er ekki byrjaður að æfa ennþá,“ sagði Páll Viðar Gíslason.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun, viðtöl, einkunnir og myndband: Þór - Stjarnan 3-4 | Stjörnusigur í markaleik Stjarnan hélt út eftir að komast 4-1 yfir. 18. maí 2014 00:01 Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Íslenski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Sjá meira
Umfjöllun, viðtöl, einkunnir og myndband: Þór - Stjarnan 3-4 | Stjörnusigur í markaleik Stjarnan hélt út eftir að komast 4-1 yfir. 18. maí 2014 00:01