Innlent

Öryggi sjúklinga í fyrirrúmi

Freyr Bjarnason skrifar
Forstjóri Landspítalans segir að leita þurfi leiða til að fjármagna endurnýjun húsnæðis spítalans.
Forstjóri Landspítalans segir að leita þurfi leiða til að fjármagna endurnýjun húsnæðis spítalans. Fréttablaðið/GVA
Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, segir langtímaverkefni spítalans snúast um að efla öryggismenningu og bæta gæðastarf.

„Það nýja í þróun heilbrigðisþjónustu er að leggja sérstaka áherslu á öryggi sjúklinga. Með því að draga úr breytileika í þjónustu og auka öryggismenningu á meðal starfsfólks er hægt að bæta öryggi margfalt á heilbrigðisstofnunum,“ sagði Páll í samtali við blaðamann á ársfundi Landspítala sem var haldinn á Hilton Reykjavík Nordica í gær.

„Stærsti hlutinn af því verkefni er síðan að bæta húsakost og tækjabúnað. Þessi ársfundur gengur [gekk] að miklu leyti út á það hvers vegna við teljum að bætt öryggi og bættur húsakostur séu nátengd mál,“ sagði hann. Til stendur að sameina bráðamóttökurnar tvær í eina sem verður á einni hæð í nýjum meðferðarkjarna við Hringbraut, auk þess sem skurðstofur og gjörgæslur verða á einni hæð. Um níu þúsund sjúklingar eru fluttir á milli Fossvogs og Hringbrautar á hverju ári og um 25 á dag.

Að sögn Páls þarf að leita leiða til að fjármagna endurnýjun húsnæðis spítalans því núverandi ástand bygginganna sé að verða ógn við öryggi í heilbrigðisþjónustu. Heildarhúsnæði Landspítalans er 151 þúsund fermetrar. Þar af voru 82 þúsund fermetrar byggðir fyrir 1970, eða 54%. Á síðustu 25 árum hafa aðeins 8% af fermetrafjöldafjöldanum verið byggð.

Húsakosturinn er barn síns tíma og á fundinum var sýnt fram á að plássið sem bæði sjúklingar og starfsmenn hafa úr að moða er alltof lítið.

Fram kom í máli Maríu Heimisdóttur, framkvæmdastjóra fjármálasviðs Landspítalans, að reiknað er með að viðhaldsþörf á spítalanum nemi um fimm milljörðum króna á árunum 2015 til 2017 sem er meira en gengur og gerist erlendis.

Ef horft er lengra fram í tímann eða til 2050 er reiknað með alls 41 milljarði króna í viðhald og rekstur. Upphæðin færi upp í 61 milljarð króna ef nýbyggingar yrðu byggðar við þær sem fyrir eru. Þrátt fyrir hærri upphæð sagði María að nýbyggingar væru alltaf hagstæðari kosturinn. Þannig myndi rekstrarkostnaður Landspítalans til að mynda lækka um 2,7 milljarða á ári hverju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×