Innlent

Ris og fall Hildar Lilliendahl

Freyr Bjarnason skrifar
Eftir að Hafdís Huld kom fram í Kastljósi hafa birst gróf ummæli sem Hildur eða kærasti hennar höfðu uppi um nafnkunna einstaklinga.
Eftir að Hafdís Huld kom fram í Kastljósi hafa birst gróf ummæli sem Hildur eða kærasti hennar höfðu uppi um nafnkunna einstaklinga. Vísir/Stefán
Hildur Lilliendahl hefur verið mikið í umræðunni undanfarna daga eftir að upp komst um meiðandi ummæli hennar í garð söngkonunnar Hafdísar Huldar á netinu. Síðustu ár hefur Hildur verið áberandi fyrir femíníska baráttu og unnið til verðlauna. Fréttablaðið tók saman ferilinn.

2004
Byrjar að blogga og tekur í framhaldinu virkan þátt í umræðum á póstlista femínista. Hún stundar einnig spjallborðið á vefsíðunni Barnalandi.is, sem núna heitir Bland.is.

Apríl 2006 Tekur þátt í ljóðasamkeppni Fréttablaðsins, Sigurskáldið, og vekur athygli fyrir ljóðið Sweet Jane, sem fjallar um spúsu Tarzans og hvernig nútímakonan finnur sig í henni.

Febrúar 2012 Býr til síðuna Karlar sem hata konur á Facebook þar sem hún tekur saman ummæli karla af netinu sem eru að hennar mati fjandsamleg konum. Síðan vekur mikil viðbrögð og Hildur verður áberandi í femínískri baráttu í kjölfarið.

Nóvember 2012 Heiðruð, ásamt Hönnu Björgu Vilhjálmsdóttur, af samtökunum UN Women fyrir framlag sitt til baráttunnar gegn kynbundnu ofbeldi. Af því tilefni leiða þær hina árlegu ljósagöngu í Reykjavík.

Nóvember 2012 Fær hugrekkisviðurkenningu frá Stígamótum fyrir Karlar sem hata konur. „Baráttukonan Hildur hefur hvað eftir annað brotið þær hefðir og venjur sem segja til um það hvað konum er leyfilegt. Hún hefur hispurslaust rætt um sín hjartans mál án þess að skeyta um hávær mótmæli varðhunda óbreytts ástands,“ segja Stígamót í rökstuðningi sínum fyrir valinu.

Desember 2012 Valin hetja ársins af lesendum DV. Í frétt DV sagði: „Hún hefur barist fyrir jafnréttismálum hér á landi og gegn því að kvenfyrirlitning og lítillækkun á konum í orðræðu verði að eðlilegum hugsunarhætti. Fyrir þetta hefur hún meðal annars þurft að þola persónuárásir, hótanir og útskúfun á Facebook.“

Júní 2013 Einn af nokkrum femínistum sem skráir sig í fegurðarsamkeppnina Ungfrú Ísland í því skyni að bjóða staðalímyndum byrginn. Af sömu ástæðu prýðir hún í júlímánuði forsíðu Vikunnar þar sem hún er umbreytt, með sítt ljóst hár og klædd flegnum kjól.

Febrúar 2014 Söngkonan Hafdís Huld greinir frá því í viðtali við Kastljós að Hildur hafi farið fremst í flokki í því að leggja hana í einelti á netinu. Fleiri gróf ummæli sem hún eða eiginmaður hennar Páll Hilmarsson höfðu uppi á netinu, stundum undir dulnefninu NöttZ, eru dregin fram í dagsljósið. Þau hafa bæði beðist afsökunar á ummælunum. Talskona Stígamóta segir að Hildur hefði aldrei fengið hugrekkisviðurkenninguna árið 2012 ef samtökin hefðu vitað um ummæli hennar á netinu.

Ummæli á Visir.is um málið

„Þó að ég hafi aðrar skoðanir en Hildur Lilliendahl eða einhver annar þá hóta ég aldrei að berja fólk. Mér finnst það aumkunarvert.“ - Hlín Einarsdóttir.

„Fólk má hafa skoðanir á list eins og það vill en það er samt alltaf ákveðin lína og þegar verið er að hóta manni nauðgun og öðru af slíkum toga þarf að taka það alvarlega.“ - Hafdís Huld.

„Ég væri frekar til í að koma út úr skápnum en að lesa Bland.is. Maður hefur ekki geð í sér til að lesa vefi þar sem sjúkt fólk er að tjá sig.“ - Sveinn Andri Sveinsson.

„NöttZ hefur bersýnilega hagað sér brjálæðislega miklu verr heldur en ég hafði áttað mig á, en ég held að notendurnir [á Bland.is] hafi allir skilið á þeim tíma að hvorki mér né nokkrum öðrum álíka ruddum hafi verið alvara með það sem við vorum að segja.“ - Hildur Lilliendahl.

„Ég skammast mín ofan í tær.“ - Hildur Lilliendahl

„Að segja að eitthvað sé grín er ekki lengur afsökun. Þó maður sé að grínast er svo erfitt að greina á milli gríns og alvöru á netinu. Netið er ekki einhver annar heimur. Orð hafa afleiðingar og það er annað fólk bak við skjáinn.“ - Björn Rúnar Egilsson, verkefnastjóri SAFT og Heimila og skóla.

Ummæli Hildar eða kærasta hennar

„Myndirðu nauðga Hafdísi Huld með tjaldhæl?“ 

„Hver vill koma út að drepa?“ 

„Nennir einhver að berja hana fyrir mig?“ 

„Er Svanhildur Hólm virkilega svona feit?“

„Helvítis mellan sagði að ég væri með sigin brjóst. Hún er réttdræp fyrir mér.“ 

„Mig langar svo ofboðslega að drepa þennan mann með hamri að það er vandræðalegt.“



Eins gott að passa sig á netinu

„Femínistar eru mjög leiðir yfir þessu,“ segir Steinunn Rögnvaldsdóttir, talskona Femínistafélags Íslands, en tekur fram að mál Hildar setji ekki strik í reikninginn fyrir þá.

„Þeir hætta ekkert að vera femínistar. Femínistar eru líka eins misjafnir og þeir eru margir. Femínismi er miklu meira en bara Hildur Lilliendahl. Það eru ekki bara einn eða tveir femínistar til, þeir eru þúsundir. Hildur hefur aldrei tekið á sig ábyrgðarhlutverk fyrir femínista. Hún er í sinni baráttu og hefur gert góða hluti þar,“ segir hún.

„Þetta sýnir kannski einmitt að það sem þú setur á internetið er þar áfram og fer ekkert. Það er eins gott að passa sig. Fyrst og fremst á fólk ekki að segja svona hluti, hvort sem þeir verða uppgötvaðir eða ekki,“ segir Steinunn.

Hildur hefur breyst mikið

„Þessi ummæli hennar og mannsins hennar eru ótrúlega ömurleg og mér dettur ekki í hug að verja þau. En þetta gerðist fyrir löngu og ég er ekki viss um að neitt okkar vilji svara fyrir allt sem við sögðum og gerðum fyrir fimm árum,“ segir Helga Þórey Jónsdóttir, samstarfskona Hildar. 

„Hildur hefur breyst mikið síðan þá og sú manneskja sem hún er í dag er einhvern veginn svo frábær. Það er ofsalega leiðinlegt að nota hennar gamla sjálf gegn þeim góðu hlutum sem hún er að gera núna.“

Helga Þórey vill ekki meina að Hildur hafi komið slæmu orði á baráttu femínista með ummælum sínum.

„Við föllum öll í þá gryfju að gera þá óraunhæfu kröfu að fólk sem er að standa í réttindabaráttu þurfi að vera flekklaust á öllum sviðum. Hún er ekki flekklaus frekar en aðrir þannig að hennar persónulegu gallar eða mistök úr fortíðinni eiga ekki að varpa skugga á það sem hún er að gera í dag. Eins og með albúmið hennar Karlar sem hata konur þá dregur þetta ekkert úr þeim ömurlegu ummælum sem eru þar. Það er enginn að biðjast afsökunar á þeim en hún hefur beðist afsökunar og sýnt iðrun. Hún er sannarlega leið yfir þessu máli.“

Leiðrétt klukkan 16: Sagt var að Björg Vilhelmsdóttir hefði verið kyndilberi UN Women árið 2012. Hið rétta er að Hanna Björg Vilhjálmsdóttir var kyndilberi.


Tengdar fréttir

Segir ummæli Hildar dæma sig sjálf

"Ég var að sjá þessi ummæli í fyrsta skipti í dag og er algjörlega slegin yfir þeim,“ segir Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir.

„Ég kenni bara í brjósti um hana“

NöttZ, notendanafn Hildar Lilliendahl, sagðist vilja drepa hæstaréttarlögmanninn Svein Andra Sveinsson með hamri á samskiptamiðlinum Bland.is árið 2010.

„Hefði aldrei fengið þessa viðurkenningu“

"Við hjá Stígamótum erum vissulega mjög leiðar yfir þessu og urðum fyrir miklum vonbrigðum,“ segir Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, í samtali við Vísi í kvöld.

Afsökunarbeiðni frá eiginmanni Hildar

Páll Hilmarsson, eiginmaður Hildar Lilliendahl, hefur birt afsökunarbeiðni á bloggsíðu sinni vegna ummæla sem voru til umfjöllunar í Kastljósi í gærkvöldi.

Femínismi er meira en Hildur Lilliendahl

„Þetta sýnir það einmitt að það sem þú setur á internetið það er á internetinu og það fer ekkert. Það er eins gott að passa sig“, segir Steinunn Rögnvaldsdóttir, talskona Femínista.

Sagði lýtalækni réttdræpan

Notandinn NöttZ á bland.is sagði að nafngreindur lýtalæknir væri „mella“ sem ætti að berja og væri réttdræp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×