Þriggja daga þjóðarsorg í Pakistan Atli Ísleifsson skrifar 16. desember 2014 22:18 Nawaz Sharif, forsætisráðherra Pakistans, hefur lýst yfir þriggja daga þjóðarsorg. Vísir/AFP
Íbúar í pakistönsku borginni Peshawar eru byrjaðir að grafa þá sem létust í árás talibana á skóla í borginni fyrr í dag. 132 börn létust í árásinni og níu fullorðnir. Syrgjendur flykktust í kringum kistur hinna látnu á meðan aðrir biðu fregna af þeim sem liggja sárir á sjúkrahúsum. Nawaz Sharif, forsætisráðherra Pakistans, hefur lýst yfir þriggja daga þjóðarsorg og her landsins réðst gegn uppreisnarmönnum í landshlutanum seinni part dags. Þjóðarleiðtogar heims hafa fordæmt árásins og segja þessa mannskæðustu árás talibana til þessa viðbjóðslega. Talibanar í Afganistan hafa einnig neitað því að hafa átt aðild að árásinni. Barack Obama Bandaríkjaforseti sagði hryðjuverkamennina enn og aftur hafa sýnt fram á fólskulegt eðli sitt. Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði þetta vera hryðjuverk og merki um heigulshátt. Að sögn talsmanna pakistanska hersins var árásin á skólann gerð af sjö talibönskum vígamönnum sem allir klæddust sprengjuvestum.Í frétt breska ríkisútvarpsins segir að þeir hafi skorið sér leið inn á lóð skólans og haldið inn í áheyrendasal þar sem nemendur þreyttu próf. Eftir það fóru þeir inn í hverja skólastofuna á fætur annarri og skutu nemendur jafnt sem kennara. Árásin stóð yfir í um átta klukkustundir. Alls særðust 125 í árásinni áður en árásarmennirnir sjö höfðu allir verið skotnir til bana.
Tengdar fréttir Margir fallnir í árás á skóla í Pakistan Að minnsta kosti tuttugu námsmenn eru látnir og fjörutíu særðir í árás á skóla sem pakistanski herinn rekur í borginni Peshawar í Pakistan. 16. desember 2014 08:58 Minnst áttatíu börn látin í árás Talibana í Pakistan Vígamenn hófu skothríð á samkomu barna í skóla. 16. desember 2014 10:49 Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Fleiri fréttir Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Sjá meira
Margir fallnir í árás á skóla í Pakistan Að minnsta kosti tuttugu námsmenn eru látnir og fjörutíu særðir í árás á skóla sem pakistanski herinn rekur í borginni Peshawar í Pakistan. 16. desember 2014 08:58
Minnst áttatíu börn látin í árás Talibana í Pakistan Vígamenn hófu skothríð á samkomu barna í skóla. 16. desember 2014 10:49