Lífið

Jólastjarnan 2014: Patrekur Orri syngur Þessi fallegi dagur

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Patrekur Orri Unnarsson er einn af tíu keppendum sem keppast um að verða Jólastjarnan 2014. Hér fyrir neðan má sjá atriðið sem hann sýndi fyrir dómnefnd í keppninni en hann flutti lagið Þessi fallegi dagur.

Patrekur Orri er tólf ára gamall og mikið sjarmatröll eins og sést í meðfylgjandi myndbandi.

Söngkeppnin Jólastjarnan hefur verið haldin síðustu ár og í ár sóttu um þrjú hundruð  börn, yngri en sextán ára, um að komast í tíu manna úrtak fyrir framan dómnefnd. Í dómnefnd í ár eru Björgvin Halldórsson, Gissur Páll, Gunnar Helgason og Jóhanna Guðrún.

Sigurvegari keppninnar verður tilkynntur í næstu viku í Íslandi í dag en hann kemur fram á stórtónleikunum Jólagestir Björgvins eins og síðustu ár.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×